Úrtaka Geysis, Jökuls, Sindra og Kóps
Sameiginleg úrtaka Geysis, Jökuls, Sindra og Kóps fyrir Landsmót hestamanna fer fram 12. – 14. júní á Rangárbökkum við Hellu.
Skráning er opin til kl. 23:59 fimmtudaginn 4. júní og fer fram í Sportfeng.
Við biðlum til knapa að skrá tímanlega.
Drög að dagskrá verða birt í vikunni.
Áhugasamir sjálfboðaliðar hafi samband við sín félög, við svo stóran viðburð vantar öflugt fólk til ýmissa verka. Við stefnum að sjálfsögðu öll á Landsmót!
Afskráningar og spurningar berist til mótstjóra (Sóley Margeirsdóttir) á netfangið skraninggeysir@gmail.com eða í s: 8677460.
Tinni slær heimsmet
Ráðstefna um þjónustu með aðstoð dýra
HorseDay hefur tekið við af gömlu góðu Landsmótskránni
Skeiðkappreiðar hjá Sörla