Varst þú búinn að hlusta á annan þáttinn af Á Kaffistofunni?
Annar þátturinn af mörgum sem framundan eru af Hlaðvarpsþættinum Á Kaffistofunni leit dagsins ljós í síðustu viku. Þættirnir eru samvinnuverkefni Eiðfaxa og þeirra Arnars Bjarka Sigurðarsonar og Hjörvar Ágústssonar sem jafnframt er þáttarstjórnandi.
Í þessum þætti eru viðmælendur Hjörvars þau Hinrik Bragson og Hulda Gústafsdóttir.
Í þættinum fáum við að kynnast þeim betur og fræðast um þeirra vegferð í hestamennskunni. Þau koma úr sitthvorri áttinni inn í hestamennskuna, Hinrik er úr stórri hestafjölskyldu en Hulda laðaðist að hestum þrátt fyrir að foreldrar hennar hafi ekki verið í hestamennsku. Margar skemmtilegar sögur, sigrar og töp eru rifjuð upp í þessu fróðlega og skemmtilega spjalli.
Ef þú varst ekki búinn að hlusta á þáttinn getur þú bætt úr því núna með því að smella hér að neðan og hlusta á þessa skemmtilegu viðbót við fjölmiðlun hestamanna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH