Álfarinn gefur besta fetið

  • 4. nóvember 2020
  • Fréttir

Olil Amble og Álfarinn á HM2019

Af þeim stóðhestum sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu

Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.

Alls eru þeir stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu 37 talsins.

Nú skoðum við eiginleikanna fet.

Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum er sá stóðhestur sem á þau afkvæmi sem hlutu hæstu einkunn fyrir fet á árinu. Meðaltal afkvæma hans fyrir fet er 8,27, hann átti alls 11 fullnaðardæmd afkvæmi á árinu sem voru 5,4 vetra að meðaltali. Annar á listanum er Sjóður frá Kirkjubæ og þriðji er Herkúles frá Ragnheiðarstöðum.

Hér er listi yfir alla stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn afkvæma þeirra fyrir fet

Hestur Fjöldi Meðalaldur Fet
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 11 5,4 8,27
Sjóður frá Kirkjubæ 27 6,0 8,24
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 11 5,6 8,18
Spuni frá Vesturkoti 51 6,4 8,17
Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði 14 6,3 8,11
Aron frá Strandarhöfði 11 6,8 8,09
Álfur frá Selfossi 29 6,8 8,07
Loki frá Selfossi 20 5,8 8,00
Aðall frá Nýjabæ 12 6,3 8,00
Álfasteinn frá Selfossi 15 6,2 7,97
Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3 11 7,5 7,95
Toppur frá Auðsholtshjáleigu 11 6,1 7,95
Lord frá Vatnsleysu 11 6,4 7,95
Hrannar frá Flugumýri II 35 5,6 7,94
Hrímnir frá Ósi 13 6,5 7,88
Framherji frá Flagbjarnarholti 17 6,2 7,88
Sær frá Bakkakoti 14 7,7 7,86
Hróður frá Refsstöðum 16 7,3 7,84
Hnokki frá Fellskoti 11 5,6 7,82
Eldur frá Torfunesi 19 6,6 7,82
Ölnir frá Akranesi 21 4,9 7,81
Kiljan frá Steinnesi 18 6,8 7,78
Stáli frá Kjarri 39 6,2 7,77
Óskasteinn frá íbishóli 20 6,5 7,75
Ómur frá Kvistum 36 6,3 7,74
Skýr frá Skálakoti 34 5,6 7,74
Arion frá Eystra-Fróðholti 38 6,0 7,67
Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum 12 6,7 7,67
Prins frá Knutshyttan 10 7,0 7,65
Trymbill frá Stóra-Ási 14 5,9 7,57
Viktor frá Diisa 11 7,1 7,55
Viti frá Kagaðarhóli 15 6,0 7,53
Jarl frá Árbæjarhjáleigu II 19 6,2 7,47
Oliver frá Kvistum 10 6,6 7,45
Kjerúlf frá Kollaleiru 14 6,6 7,36
Konsert frá Hofi 37 4,8 7,30
Arður frá Brautarholti 17 6,7 7,29

 

Loki og Herkúles gefa besta stökkið – Smelltu hér

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link