Afkvæmi Loka hlutu hæst fyrir fegurð í reið

  • 9. nóvember 2020
  • Fréttir

Loki frá Selfossi ásamt knapa sínum Sigurður Sigurðarsyni á Landsmóti árið 2014 mynd: Henk Peterse

Af þeim stóðhestum sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu

Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.

Alls eru þeir stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu 37 talsins.

Nú skoðum við eiginleikann fegurð í reið.

Afkvæmi Loka fá Selfossi hlutu hæstu einkunn fyrir fegurð í reið af þeim stóðhestum sem eiga 10 afkvæmi eða fleiri á árinu. Meðaleinkunn þeirra var 8,60 en alls voru þau 20 talsins og meðalaldurinn 5,8. Næstur á listanum er Herkúles frá Ragnheiðarstöðum og þriðji er Kjerúlf frá Kollaleiru.

Hér er listi yfir alla stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn afkvæma þeirra fyrir fegurð í reið

Faðir Fjöldi Meðalaldur Fegurð í reið
Loki frá Selfossi 20 5,8 8,60
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 11 5,6 8,50
Kjerúlf frá Kollaleiru 14 6,6 8,46
Hrímnir frá Ósi 13 6,5 8,38
Framherji frá Flagbjarnarholti 17 6,2 8,38
Hrannar frá Flugumýri II 35 5,6 8,34
Álfur frá Selfossi 29 6,8 8,33
Konsert frá Hofi 37 4,8 8,32
Skýr frá Skálakoti 34 5,6 8,32
Arður frá Brautarholti 17 6,7 8,32
Lord frá Vatnsleysu 11 6,4 8,32
Hróður frá Refsstöðum 16 7,3 8,31
Eldur frá Torfunesi 19 6,6 8,29
Arion frá Eystra-Fróðholti 38 6,0 8,28
Álfasteinn frá Selfossi 15 6,2 8,27
Ölnir frá Akranesi 21 4,9 8,26
Trymbill frá Stóra-Ási 14 5,9 8,25
Kiljan frá Steinnesi 18 6,8 8,25
Óskasteinn frá íbishóli 20 6,5 8,25
Sær frá Bakkakoti 14 7,7 8,25
Stáli frá Kjarri 39 6,2 8,24
Sjóður frá Kirkjubæ 27 6,0 8,24
Jarl frá Árbæjarhjáleigu II 19 6,2 8,24
Aron frá Strandarhöfði 11 6,8 8,23
Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði 14 6,3 8,21
Spuni frá Vesturkoti 51 6,4 8,20
Ómur frá Kvistum 36 6,3 8,19
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 11 5,4 8,18
Hnokki frá Fellskoti 11 5,6 8,18
Oliver frá Kvistum 10 6,6 8,15
Viti frá Kagaðarhóli 15 6,0 8,10
Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3 11 7,5 8,09
Toppur frá Auðsholtshjáleigu 11 6,1 8,09
Viktor frá Diisa 11 7,1 8,05
Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum 12 6,7 8,04
Aðall frá Nýjabæ 12 6,3 8,00
Prins frá Knutshyttan 10 7,0 8,00

Álfarinn gefur besta fetið – Smelltu hér

Loki og Herkúles gefa besta stökkið – Smelltu hér

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link