Heimsmet, stórmót og þolreiðarkeppni

  • 30. desember 2022
  • Fréttir
Annáll 2022 - Sumar

Frábær hross komu til dóms og litu nokkrar tíur dagsins ljós á kynbótasýningum sumarsins.

Viðar frá Skör varð hæst dæmdi hestur í heimi þegar hann var sýndur af Helgu Unu Björnsdóttur í byrjun júní.

Horst Klinghart og Ánægja vom Lixhof fóru 150 m. á 12,82 sek í Schurrenhof í Þýskalandi. Heimsmetstími sem fékk þó ekki staðfestur þar sem tækjabúnaðar uppfyllti ekki kröfur FEIF til að fá tímann viðurkenndann.

Keppst var við að sýna afkæmi stóðhesta sem líklegir voru til afkvæmaverðlauna á Landsmóti. Átta stóðhestar náðu lágmörkum til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi og fimm til heiðursverðlauna. Sjóður frá Kirkjubæ og Jarl frá Árbæjarhjáleigu voru jafnir að kynbótamati, báðir með 124 stig, en skorið var úr með aukastöfum og tóku aðstandendur Sjóðs á móti Sleipnisbikarnum á Landsmótinu. Þegar kynbótamatið var endurreiknað seinna um árið endaði Jarl hærri enn Sjóður.

Landsmót hestamanna fór fram á Rangárbökkum við Hellu. Mótið var ágætlega vel sótt en talið er að tæplega 9.000 manns hafi mætt á mótið. Vonsku veður gerði á Hellu sem gerði það að verkum að það þurfti að gera dagskrárbreytingar á fimmtu- og föstudeginum. Hópreiðinni var aflýst og yfirliti frestað. Nokkuð bar á ónægju meðal kynbótaknapa og aðstandenda. Þótti framkvæmd mótsins þó takast vel og var mikið talað um sjaldan hafði sést jafn sterkur b flokkur og unglingaflokkur á Landsmóti. Heimsmet var sett í hæfileikaeinkunn þegar Hans Þór Hilmarsson sýndi Sindra frá Hjarðartúni í 9,38 fyrir hæfileika.

Íslandsmót fullorðna og ungmenna var haldið á Hellu tveimur vikum eftir Landsmót. Mátti greina þreytu meðal knapa og skipuleggjenda. Mótið tókst þó frábæralega og var vel að því staðið.

Íslandsmót barna og unglinga var haldið í Borgarnesi í byrjun ágúst. Mótið tókst vel og er alltaf jafn gaman að fylgjast með ungu kynslóðinni og sjá hvað við eigum mikið af ungum og efnilegum knöpum.  Nýir farandbikarar voru afhentir á mótinu en verðlaunin voru gefin af nokkrum aðildarfélögum LH; Sörla, Spretti, Hring, Herði, Sleipni, Fáki og Snæfellingi.

Áhugamannamót Íslands fór fram á Akranesi en oft hefur verið meiri skráning á mótið.

Í byrjun ágústs var Hinrik Þór Sigurðsson ráðinn sem verkefnastjóri afreks- og mótamála á skrifstofu LH.

Norðurlandamót fór fram í Álandseyjum í Finnlandi. Svíar unnu liðabikarmótsins, Danir unnu til fjögurra gullverðlauna og Íslendingar unnu þrjú gullverðlun; í A flokki fullorðinna, ungmennaflokki og tölti í ungmennaflokki.

Að vanda bauð RML upp á heysýnatöku

Síðsumarssýning á Sörlastöðum var felld niður vegna ónægrar skráningar og þurfti að fresta sýningu á Hellu einn daginn vegna gulrar viðvörunnar.

Þolreiðarkeppni LH, Survive Iceland, var haldin í lok ágúst. Keppnin vakti nokkra athygli, bæði slæma og góða.

 

Eiðfaxi Sumar kom út

Í bókinni voru umfjallanir um Íslandsmót, Landsmót, Norðurlandamót og þolreiðina Survive Iceland. Viðtal var við Hans Þór Hilmarsson sem setti heimsmet á Sindra frá Hjarðartúni á Landsmótinu. Trausti Þór Guðmundsson rifjaði upp eftirminnilegustu hrossin á sínum ferli ásamt fleira skemmtilegu efni.

Mest lesnu fréttirnar á vefnum sumarið 2022

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link