Hestamannafélagið Sörli Hestamannafélagið Sörli leitar að móta- og viðburðafulltrúa

  • 9. október 2026
  • Tilkynning

Frá keppnissvæði Sörla

Leitað er að skipulögðum, sjálfstæðum og lausnamiðuðum einstaklingi

Hestamannafélagið Sörli í Hafnarfirði auglýsir nýtt starf móta- og viðburðafulltrúa. Um er að ræða hlutastarf sem sett er upp sem eins árs tilraunaverkefni, en að því loknu verður árangur metinn með tilliti til framhalds.

Móta- og viðburðafulltrúi mun bera ábyrgð á skipulagi og tímasetningu viðburða félagsins, hámarka nýtingu á glæsilegri aðstöðu Sörla og leiða vinnu við styrkjaöflun og tekjutækifæri. Starfið felur í sér náið samstarf við framkvæmdastjóra, stjórn, yfirþjálfara og ýmsar nefndir félagsins, sérstaklega mótanefnd.

Helstu verkefni og áherslur:
  • Skipulag og samræming á viðburðum og mótahaldi félagsins.
  • Rétt og markviss nýting á aðstöðu Sörla.
  • Samstarf við nefndir félagsins og undirbúningur móta.
  • Styrkjaöflun, samstarf við fyrirtæki og greining á nýjum tekjutækifærum.

Leitað er að skipulögðum, sjálfstæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem þekkir vel til hestaíþrótta og íslensks hestasamfélags. Reynsla af viðburðahaldi og styrkjasamstarfi er mikilvæg, sem og rík samskiptafærni.

Umsóknarfrestur er til 20. október. Áhugasömum er bent á að senda fyrirspurnir og upplýsingar á netfangið [email protected].

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link