Landsamband hestamanna Ert þú í hestamannafélagi?

  • 4. mars 2025
  • Tilkynning
Landssamband hestamannafélaga hefur endurvakið átak til þess að vekja athygli á samfélagi hestamanna í hestamannafélögunum og því góða starfi sem þar er unnið.

Fjölmargir hesteigendur og hestamenn eru ekki skráðir í félag. Þetta hefur margvísleg áhrif á starf félaganna og vill Landssamband hestamannafélaga því hvetja hestamenn til að taka virkan þátt í starfi sínu og kanna hvort hestamenn séu örugglega með virka félagsaðild.

Markmiðið er að fjölga skráningum í hestamannafélög landsins en á sama tíma að halda á lofti og bæta ímynd hestamanna sem og mikilvægi hestamennsku sem afreks- og almenningsíþróttar bæði í sveit og þéttbýli. Með auknum fjölda félagsmanna má auðvelda fyrir innleiðingu enn fleiri verkefna og hærra þjónustustigs öllum hestamönnum til heilla.

Dæmi um verkefni hestamannafélagana:
  • Nýting, viðhald og umsjón innviða t.d. reiðhallir, þjálfunaraðstaða, keppnisvellir, beitarhólf og önnur sambærileg íþróttamannvirki.
  • Þjónusta sem félögin bjóða gjarnan upp á eins og snjómokstur, losun á taði, lýsing, kerrustæði, plastgámar ofl.
  • Hagsmunagæsla og réttindabarátta gagnvart öðrum almennings íþróttum og ágengi þéttbýlis, en einnig samtal og samningar við sveitarfélög og yfirvöld.
  • Félögin standa vörð um íþróttina og ásýnd hennar sem og þá menningararfleifð sem hestamennskan er og tryggja að hún taki pláss í samfélaginu.
  • Þá eru öryggismál, forvarnarmál, nýliðun, menntun, keppni, afreksstarf, þróun og uppbygging félagssvæðanna á ábyrgð félaganna auk þess sem aðstaða til ferðalaga, merkingar og skráning reiðleiða, áningargerði og vegpóstar væru ekki til staðar nema vegna þess að félögin láta sig þessa hluti varða.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Í HESTAMANNAFÉLAG

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar