Blóðmerahald, útflutningur og fjaðrafok í kringum landsliðið
Hrossin héldu áfram að streyma úr landi en metár var í útflutningi en yfir 3.000 hross yfirgáfu landið.
Ákveðið var að Norðurlandamótið 2022 yrði haldið í Álandseyjum, Finnlandi.
Við hestafræðideild Háskólans á Hólum, í samstarfi við sænska landbúnaðarháskólann, var unnið að rannsóknum á áhrifum á þyngd knapa á líkamlegt álag á íslenska hestinum.
Hópur bænda, áhuga- og vísindamanna sótti átta hross að Botnum í Meðallandi en hrossahópurinn hafði verið einangraður frá öðrum hrossum í landinu í sjötíu ár.
Miðasala hófst á Landsmót á Hellu 2022 og á Heimsmeistaramótið í Hollandi 2023.
Samningaviðræður hófust við mótshaldara í Sviss um að halda heimsmeistaramótið 2025.
Knapar ársins og keppnishestabú ársins var heiðrað á Hótel Natura. Árni Björn Pálsson var valinn knapi ársins og Þúfur í Skagafirði keppnishestabú ársins.
Knapa var vísað úr landsliðinu. Daginn eftir var samningur landsliðsþjálfara laus. Afbrot landsliðsmannsins ullu miklu fjaðrafoki en einnig var brottvikning hans úr liðinu umdeild.
LH hélt rafræna menntaráðstefnu.
Hrossaræktendur biðu í ofvæni eftir nýju kynbótamati sem var “fashionably late”
Þýsk/austurrísk dýraverndunarsamtök birtu myndband sem tekið hafði verið upp á Íslandi í tengslum við blóðtöku hryssa. Eftir það komst fátt annað að hjá hestamönnum en blóðmerahald á Íslandi en myndbandið vakti hörð viðbrögð.
Íslenski hesturinn var á besta tíma á BBC news.
Ráðstefnan Hrossarækt 2021 var haldin. Garðshorn á Þelamörk var valið ræktunarbú ársins 2021. Ösp frá Hólum hlaut Glettubikarinn. Sjóður frá Kirkjubæ, Konsert frá Hofi og Hnokki frá Fellskoti hlutu allir heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og Hringur frá Gunnarsstöðum, Hreyfill frá Vorsabæ II og Hófur frá Varmalæk hlutu fyrstu verðlaun fyrir afkæmi
U21 Landsliðshópur LH 2022 var kynntur.
Töluverð umfjöllun var um störf starfshóps um hestanöfn á íslenskum fréttamiðlum og einstakar ákvarðanir hans.
Eiðfaxi haust kom út. Við lásum um hestasjúka dugnaðarforka í Langhúsum í Fljótum. Freyja Hilmarsdóttir var í viðamiklu viðtali, við lásum sögu gæðingsins Sókrons frá Sunnuhvoli. Þorvaldur Árni Þorvaldsson sagði okkur frá gæðingum úr sínu lífi, Horses of Iceland fagnar sex ára afmæli um þessar mundir. Þorvaldur Kristjánsson fræddi okkur um uppruna útgeislunar. Heimir Gunnarsson fjallaði um ræktunarstarf Íslenska hestsins og við litum inn hjá Frauke Schenzel á Kronshof.
Mest lesnu fréttir á Eiðfaxa.is haustið 2021
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH