Heimsmet, aliendur og covid laus stórmót
Covid-19 lét lítið fyrir sér fara í byrjun sumars og hestamenn gátu glaðst saman án samkomutakmarka á Reykjavíkurmeistaramóti, Íslandsmóti fullorðna og ungmenna á Hólum, Fjórðungsmóti Vesturlands og Landssýningu kynbótahrossa í Borgarnesi og Íslandsmóti barna og unglinga í Hafnarfirði. Allt þóttu þetta vel heppnuð mót og fóru áhorfendur og keppendur ánægðir heim.
Þegar líða fór á sumarið fór faraldurinn þó að minna á sig aftur og varð að gera hlé á miðssumarssýningu á Hellu eftir að hópsmit koma upp meðal dómara, sýnenda og annarra aðstandanda.
Fyrsta kynbótasýningin í tvö ár haldin í Hollandi.
Daníel Ingi Smárason á Huldu från Margreterhof settu nýtt heimsmet í 250 metra skeiði, 21,07
Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk nældu sér í fyrstu tíu ársins í hæfileikadómi en Kastor hlaut 10 fyrir skeið. Fleiri 10 voru gefnar á árinu; Þrá frá Prestsbæ hlaut 10 fyrir samstarfsvilja, Evert frá Slippen hlaut 10 fyrir tölt, Tangó frá Litla-Garði hlaut 10 fyrir skeið og Valdís frá Auðsholtshjáleigu hlaut 10 fyrir höfuð.
Hersir frá Húsavík bætti sér í hóp þeirra stóðhesta með 9,5 fyrir háls, herðar og bóga sem í boði eru fyrir ræktendur hér á Íslandi. Hópurinn er ekki stór en í honum eru Hersir og Ísak frá Þjórsárbakka.
Risastórt Reykjavíkurmeistaramót var haldið um miðjan júní en rétt tæplega 900 skráningar voru á mótinu en þetta var stærsta mót ársins hvað varðar fjölda keppenda.
Dýralæknaneminn Úndína Ýr Þorgrímsdóttir hóf rannsókn á tíðni magasára í íslenskum horssum.
Hestamannafélögin í uppsveitum Árnessýslu, Smári, Trausti og Logi sameinuðust í eitt og stærra félag 1. júlí.
Það eru 20 ár síðan WorldFengur fór í loftið en það var á heimsmeistaramótinu í Austurríki árið 2001.
Meintar Aliendur gerðu óskunda á Fjórðungsmótinu í Borgarnesi.
Fimm hross töpuðust frá Gatfelli þar sem eigandi þeirra var í hestaferð ásamt ferðafélögum. Hrossin komu í leitirnar tæpum mánuði síðar.
Beggi Eggertsson og Besti frá Upphafi fóru 250 m. á þýska meistaramótinu á 20,85 sek sem er betri tími en ný sett heimsmet Daníels Inga og Huldu. Hann fékk metið þó ekki staðfest.
Kynbótasýningum lauk 20. ágúst. Margir hverjir ræktendur og sýnendur voru verulega ósáttir með dómstörf sumarsins. Alls voru 1.117 fullnaðardómar felldir í ár á 17 sýningum.
Gandi frá Rauðalæk setti met þegar hann mætti til dóms í vor því hann mældist 156 cm á herðar og er eftir því sem Eiðfaxi kemst næst, sá íslenski hestur sem hæstur hefur mælst á herðarkamb í kynbótadómi frá upphafi mælinga og því um heimsmet að ræða.
Landssamband hestamanna stóð fyrir prufumóti í alþjóðlegri þolkappreið, Survive Iceland, um hálendi Íslands.
Eiðfaxi sumar kom út. Páll Bjarki Pálsson rifjaði upp kynni sín af eftirminnilegum gæðingum af ferlinum. Jón Vilmundarson var í ítarlegu viðtali, Einar Ásgeir Sæmundssen sagði okkur frá draumaferð yfir Sprengisand. Við fræddumst um hrossaræktina í Þjórsárbakka. Vakri Skjóni var á sínum stað og nú vitum við allt um Knapamerkin. Einar Ásgeirsson fræddi okkur um áhrif holdafars á efnaskipti, afköst og jafnvægi á gangi í íslenskum hestum. Fjórðungsmóti, Landssýningu í Borgarnesi og Íslandsmóti á Hólum voru gerð góð skil.
Mest lesnu fréttirnar á Eiðfaxa.is sumarið 2021
- Hafa verið týnd á fjöllum í tæpa viku
- Meintar Aliendur gera óskunda í Borgarnesi
- Vill að RML endurgreiði sér sýningargjald
- Hæst dæmda fjögurra vetra hryssa ársins sýnd á Akureyri
- Tveir stóðhestar á Íslandi nú með 9,5 fyrir háls, herðar og bóga
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH