Þyrlusmölun, uppskeruhátíðir og færeyskir fósturvísar

  • 30. desember 2023
  • Fréttir
Haust, annáll Eiðfaxa 2023

Ingunn Reynisdóttir dýralæknir vann ákveðið afrek á Bessastöðum í Vestur-Húnavatnssýslu þegar hún kippti slasaðri hryssu aftur í bóglið.

Uppskeruhátíð hestamanna var haldin um miðjan nóvember. Knapar ársins og keppnishestabú ársins voru verðlaunuð en einnig voru afhent heiðursverðlaun LH og félagi ársins heiðraður. Uppskeruhátíðir voru haldnar víðsvegar um land og knapar ársins ásamt öðru heiðraðir hjá flestum félögum landsins.

Hrossum var smalað á þyrlu sem höfðu komið sér í sjálfheldu upp á Uppsalafjalli.

RML sendi út þjónustukönnun til sýnenda og eigenda kynbótahrossa sem komu til sýningar árið 2021-2023. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á Hrossaræktarráðstefnu Fagráðs sem haldin var í byrjun desember.

Reiknað var út nýtt kynbótamat fyrir 492.564 hross í WorldFeng.

Ellefu hryssur fengu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár og einn stóðhestur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.

Í ár var fjöldi fullnaðardóma 871. Ef litið er aftur til ársins 1990 er ekki hægt að finna svo fáa dóma en næst því er fjöldi fullnaðardóma árið 1999 en þá voru þeir 979 talsins.

Hrossaræktarfélag Hrunamanna tók sig til og niðurgreiddi sýningargjöld félagsmanna.

Stáli frá Kjarri bauð til veislu í tilefni af 25 vetra afmæli sínu.

Endurmenntun LBHÍ kynnt nýtt nám í keppnisreiðmennsku sem kennt verður á þremur stöðum á landinu.

Hestamannafélagið Geysis kynnti nýtt námskeið, hestafimleika.

FEIF tilkynnti á vefsíðu sinni í nóvember að hestur hafi fallið á lyfjaprófi á Heimsmeistaramótinu og var allur árangur hans og knapa hans þurrkaður út.

Hestur losnaði úr stíu rétt eftir flugtak í fraktvél frá íslenska flugfélaginu Air Atlanta. Vélinni var snúið við en hesturinn drapst skömmu eftir lendingu.

Færeyska hestasambandið (Felagið føroysk ross) ætlar sér að setja fósturvísa úr færeyskum hryssum í íslenskar hryssur sem tilraun til að fjölga í færeyska hrossastofninum sem er í útrýmingarhættu.

Bjarni Þorkelsson gaf út bókina Æviskeið, starfssögu Þorkels Bjarnasonar fyrrum hrossaræktarráðunauts.

Um miðjan desember var undirritaður samningur milli Landssambands hestamannafélaga og Háskólans á Hólum um aukið samstarf sem miðar að auknum stuðningi við menntun afreksknapa landsliðanna og hæfileikamótunarhóp LH. Var samningurinn undirritaður á Menntadegi landsliðsins

Hekla Katharína Kristinsdóttir og Sigurbjörn Bárðarson landsliðsþjálfarar kynntu landsliðshópa sína fyrir árið 2024.

Elsa Albertsdóttir, ábyrgðarmaður hrossaræktarinnar hjá Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins hætti hjá RML.

Eiðfaxi Haust kom út

Í Eiðfaxa haust voru viðtöl við heimsmeistarana Herdísi Björgu Jóhannsdóttur og Helgu Hochstöger. Hestamannafélögin Snæfellingur og Neisti litu yfir farinn veg en bæði félögin fögnuðu stórafmæli á árinu. Farið var yfir sögu Stóðhestastöðvar ríkisins en 50 ár eru liðin frá stofnun hennar. Baldvin Ari Guðlaugsson rifjaði upp eftirminnileg hross og Einar Ásgeirsson fóðurfræðingur var með fróðlega grein um próteinríkt kjarnfóður. 

Mest lesnu fréttir á vefnum voru eftirfarandi:

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link