Afrek áratugarins – Keppnishluti ársins 2014
Árni Björn og Stormur unnu bæði tölt á Lands- og Íslandsmóti.
Samkvæmt tímatali okkar Íslendinga erum við nú á öðrum áratugi 21. aldarinnar en hann hófst 1. janúar árið 2011 og lýkur 31.desember árið 2020.
Á þessum áratug hafa orðið miklar framfarir í reiðmennsku og hrossarækt og margt markvert hefur átt sér stað. Því er ekki úr vegi að rifja upp helstu afrek hvers árs og nú tökum við fyrir keppnishluta ársins 2014.
Þetta keppnisár var mjög gott og mörg stórmót voru haldin hér heima á Íslandi sem og erlendis en þar bar hæst Landsmót Hestamanna á Hellu, Íslandsmótið sem haldið var í Víðidalnum í Reykjavík og Norðurlandamót sem haldið var í Herning í Danmörku.
Frábær hestakostur á Landsmóti
Spuni frá Vesturkoti stóð efstur í A-flokki gæðinga með einkunnina 9,30 en knapi á honum var Þórarinn Ragnarsson.
Loki frá Selfossi stóð efstur í B-flokki gæðinga með nokkrum yfirburðum. Hann hlaut einkunnina 9,39 sem er sú hæsta sem gefin hefur verið í B-flokki. Knapi á honum var Sigurður Sigurðarson.
Glódís Rún Sigurðardóttir stóð efst í barnaflokki í þriðja sinn í röð en það hefur enginn annar knapi gert hvorki fyrr né síðar. Hestur hennar var höfðinginn Kamban frá Húsavík en þau hlutu í einkunn 9.16.

Glódís stóð efst í barnaflokki þriðja landsmótið í röð á Kamban frá Húsavík
Þórdís Inga Pálsdóttir og hinn smá og knái Kjarval frá Blönduósi stóðu efst í unglingaflokki með einkunnina 8,90.
Gústaf Ásgeir Hinriksson sigraði keppni í ungmennaflokki á Ás frá Skriðulandi með einkunnina 8.82.

Þórdís Inga sigraði keppni í ungllingaflokki á Kjarval frá Blönduósi
Nokkrir tóku það tvöfalt
Árni Björn Pálsson og Stormur frá Herríðarhóli áttu magnað ár en þeir sigruðu bæði töltkeppni á Landsmóti og Íslandsmóti en þetta var þriðja árið í röð sem þeir urðu Íslandsmeistarar í tölti. Einkunn þeirra á Landsmótinu og Íslandsmótinu var sú sama í úrslitum 9,39.
Í skeiðgreinum voru Íslands- og heimsmet voru hvað eftir annað slegin. Bjarni og Hera sigrðu keppni í 250 metra skeiði á Landsmótinu á heimsmetstímanum 21,76 sekúndur en þau urðu einnig Íslandsmeistarar í þeirri grein á tímanum 21,75 sekúndur. Þá urðu þau Bjarni og Hera einnig Íslandsmeistarar í 100 metra skeiði á tímanum 7,61.

Bjarni og Teitur voru áberandi á skeiðvellinum þetta ár sem mörg önnur. Hér etja þeir kappi í 250 metra skeiði á LM2014
Þá varð Teitur Árnason bæði Landsmóts- og Íslandsmeistari í 150 metra skeiði á Tuma frá Borgarhóli en best tími þeirra á árinu var 13,74 á Íslandsmótinu og 13,77 á Landsmótinu.
Vigdís Matthíasdóttir á Veru frá Þóroddsstöðum sigraði keppni í 100 metra skeiði á Landsmótinu á tímanum 7,36.
Íslandsmót í Víðidal
Eyjólfur Þorsteinsson varð Íslandsmeistari í fjórgangi á Hlekk frá Þingnesi með einkunnina 8,00.
Reynir Örn Pálmason varð Íslandsmeistari í slaktaumatölti á Greifa frá Holtsmúla með 8,58 í einkunn.
Haukur Baldvinsson og Falur frá Þingeyrum urðu Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði með 8,17 í einkunn.
Hulda Gústafsdóttir varð Íslandsmeistari í fimmgangi á Birki frá Vatni með 7,69 í einkunn. Mette Mannseth stóð þó efst í fimmgangi á Stjörnustæl með 7,86 í einkunn en þar sem hún er erlendur ríkisborgari hlaut hún ekki titilinn.
Íþróttaknapi ársins var Reynir Örn Pálmason
Skeiðknapi ársins var Teiitur Árnason
Gæðingaknapi ársins var Þórarinn Ragnarsson
Efnilegasti knapi ársins var Gústaf Ásgeir Hinriksson
Keppnishestabú ársins var Þóroddsstaðair
Árni Björn Pálsson var útnefndur knapi ársins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH