Hin hliðin – Mette Mannseth

  • 1. október 2020
  • Fréttir

Þá er komið að því að opinbera hina hliðina hjá hrossaræktandanum og reiðkennaranum, Mette Mannseth, en á hana var skorað af Lilju Pálmadóttur í síðustu viku, þegar hún sýndi á sér hina hliðina. Mette tók að sjálfsögðu þessari áskorun.

Fullt nafn: Mette Camilla Moe Mannseth

Gælunafn: Mette

Starf: Yfirreiðkennari við Háskólann á Hólum

Aldur: 45

Stjörnumerki: Hrútur

Hjúskaparstaða: Sambúð

Uppáhalds drykkur: Drekk allavega mest kaffi

Uppáhalds matur: Salat

Uppáhalds matsölustaður: Strikið, Akureyri

Hvernig bíl áttu: Gráan tvinnbíl

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: „Einu sinni var“

Uppáhalds tónlistarmaður: Ian Gillian, Deep Purple.

Fyndnasti Íslendingurinn: Steindi.

Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Jarðaber…get ekki valið má bara taka tvennt?

Þín fyrirmynd: Mamma og Pabbi.

Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt: Gísli, í borðspili. Hjálpar öðrum svo þeir tapi ekki.

Sætasti sigurinn: Íslandsmót 2010 í fjórgang með Happadís frá Stangarholti.

Mestu vonbrigðin: Velti mér ekki uppúr því.

Uppáhalds lið í íslenska boltanum:  Hef engan áhuga á að sjá fólk í boltaleik.

Uppáhalds lið í enska boltanum: Sjá ofar.

Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju: Hnokki frá Þúfum, mjög gaman að eiga hann vildi ekki skipta hann út fyrir neinn annan.

Efnilegasti hestamaður/kona landsins: Gísli Gíslason er mjög laginn.

Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi: Tek lítið eftir útliti fólks, met það þar af síður.

Besti knapi frá upphafi: Bestur fyrir hvern, hestinn, íþróttina, hestamennskuna? Besti íslenski afreksknapinn hlýtur að vera Sigurbjörn Bárðarson, búinn að vera á toppnum ótrúlega oft og lengi og er enn.

Besti hestur sem þú hefur prófað: Held kannski að Trymbill frá Stóra-Ási hefur gefið manni bestu upplifun af samspili manns og hests.

Uppáhalds staður á Íslandi: Þar sem ekki sést til fólks eða mannvirkja.

Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Les skáldsögu.

Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum: Eiginlega ekki.

Í hverju varstu lélegastur/lélegust í skóla: Þýsku.

Í hverju varstu bestur/best í skóla: Íþróttum.

Vandræðalegasta augnablik: Geri ekki upp milli barnanna minna.

Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju: Líney á Tunguhálsi mundi sjá um að kalla á hjálp, Agnar Þór til að passa að engum leiðist og myndi byggja eitthvað handa okkur til að komast í burtu. Gísla væri örugglega gott að hafa með sér líka.

Sturluð staðreynd um sjálfa(n) þig: Geðveikislega hrædd við hákarla, stunda samt köfun.

Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju: Líklega Þórarinn Eymundsson, kemur sífellt á óvart.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndirðu spyrja:  Bara ein spurning? Mundi spyrja einhvern sem er dáinn; hvað gerist svo?

 

Ég tilnefni Eystein Leifsson af því hann er líklega næstfyndanastur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar