Kynbótasýningar, eyrnatappar og heimsmeistaramóti aflýst

  • 28. desember 2021
  • Fréttir
Annáll 2021 - Vor

Hestar héldu áfram að streyma frá landinu.

Mikil umræða skapaðist á meðal hestamanna í kjölfarið á slysi þegar tvær konur voru í reiðtúr á reiðstíg og hestar þeirra fældust vegna hjólreiðafólks með þeim afleiðingum að þær duttu af baki. Í kjölfarið var gerður sáttmála milli hestafólks og annarra vegfarenda í samstarfi við fulltrúa útivistarhópa og annarar umferðar.

Örn Karlsson minnti hestamenn óspart á það sem að hans mati mætti betur fara í kynbótadómum hrossa og þá sérstaklega þegar kæmi að taugastyrk íslenska hestsins og dómgæslu á þeim eiginleika sem kallaður er samstarfsvilji. 

Bókin, Humans, Horses and Events Management, kom út en þar var Landsmót hestamanna miðpunktur athyglinnar. Bókin var einstök að tvennu leyti. Annars vegar er þetta fyrsta bók sinnar tegundar sem fjallar um hestaviðburði sérstaklega og hins vegar hefur hún þá sérstöðu í viðburðastjórnunarfræðum að fjalla um einn ákveðinn viðburð frá mörgum sjónarhornum, Landsmót hestamanna.

Kynntar voru þær breytingar sem voru samþykktar á LH þingi 2020 og FEIF þingi 2021. Heimild til að nota eyrnatappa í keppni vakti mis mikla hrifningu meðal hestamanna.

Heimsmeistaramót íslenska hestsins sem átti að fara fram í Herning í Danmörku var aflýst.

Kynbótasýningar hófust.

 

Eiðfaxi vor kom út  þar sem m.a. var rætt við Gunnar og Kristbjörgu í Auðsholtshjáleigu, en þau fagna 35 ára starfsafmæli í útflutningi, Atli Guðmundsson rifjaði upp kynni við gæðinga af sínum ferli, Sveinbjörn og Petra ræktendur á Barkarstöðum sögðu okkur frá lífinu í hestamennskunni. Þú ert það sem þú borðar – Birna Tryggvadóttir fræddi okkur um hreyfingu og mataræði knapa. Við lásum um bjargvætti litanna, Eldinn frá Skarði, kraftaverkahestinn Frey, sigur á óttanum og margt fleira.

 

Mest lesnu fréttirnar á Eiðfaxa.is vorið 2021

  1. Landsmótssigurvegari á leið úr landi
  2. „Það segir enginn nei við svona miklum peningum“
  3. Vorkvöld í Reykjavík – dagskrá
  4. Hestagullið Lýdía skiptir um eigendur
  5. Til minningar um Hallveigu Fróðadóttur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link