Hestamennirnir í landinu – Hallveig Fróðadóttir
Fullt nafn og hestamannafélag:
Hallveig Fróðadóttir – Fákur
Hvað er þitt eftirminnilegasta atvik tengt hestamennsku?
Ansi mörg eftirminnileg en ætli fæðing fyrsta folaldsins hjá mér standi ekki uppúr; Geiri-Hvellur var slysaskot fæddur í B-tröð 8 23.apríl 1984 og bæði foreldri voru í minni eigu. Geiri-Hvellur varð traustur og góður reiðhestur og sá fyrsti í röð reiðhesta sem ég hef verið svo heppin að geta ræktað undir rassinn á sjálfri mér, undan og útaf Heklu minni frá Tungufelli.
Af hverju stundar þú hestamennsku?
Áhuginn er meðfæddur og ég komst fljótt að því að samvera með hestum er það sem gefur lífinu gildi. Hestamennskan er fjölbreytt áhugamál þar sem allir finna eitthvað við hæfi og þar fyrir utan ekkert sem jafnast á við að skoða landið okkar á hestbaki.
Besti hestur sem þú hefur riðið?
Frændsystkinin Spuni og Fregn frá Miðsitju standa uppúr af þeim sem ég hef verið svo heppin að fá að prófa. Bestur er þó alltaf Pardus frá Hamarshjáleigu (1995-2018) sem ég ræktaði sjálf; stórstígur, hágengur, með frábært brokk, gott fet, tölt og stökk. Traustur gæðingur sem allir gátu riðið, jafnvígur á keppni, námskeið, langferðir sem og sportreiðtúra þar sem rýmið á tölti og brokki fékk að njóta sín í botn.
Besti stóðhestur sem uppi hefur verið?
Þeir eru margir sem hafa skilið eftir djúp og góð spor í hrossaræktinni en Sörli frá Sauðárkróki var sá fyrsti sem heillaði mig og hef ég hrifist af Sauðárkrókslínunni í kjölfarið, en margir aðrir hafa þó heillað líka og nýst mér í minni litlu ræktun.
Fimm ræktunarhryssur að eigin vali?
Nokkrar sem hafa heillað mig: Krafla frá Sauðárkróki, Askja frá Miðsitju, Álfadís frá Selfossi, Tinna frá Teigi II, Ríma frá Auðsholtshjáleigu.
Hvað skiptir máli í ræktun?
Það sem fyrst kemur upp í hugann er: traust og heiðarlegt geðslag, en ekki þó skaplaust. Skrefstærð, hreingengni, mýkt, rými, góðar herðar, vel borinn háls, svipmikið höfuð, endingargóðir fætur og hófar. Svo þarf X-factorinn að vera til staðar til að hrossið heilli.
Eftirminnilegasta landsmótið?
2018 í Reykjavík enda er síðasta landsmótið alltaf best hvað varðar gæðinga- og kynbótahrossaúrvalið.

Hallveig á leið í hestaferð með 3 bræður úr eigin ræktun: Lynjusynirnir Pardus (F. Glæsir frá Auðsholtshjáleigu), Mídas (F. Óskar frá Litla-Dal) og Eldberg (F: Vilmundur frá Feti)
Fleiri Hestamenn sem svarað hafa spurningum Eiðfaxa
Björk Guðbjörnsdóttir
Bjarki Fannar Brynjuson
Arnar Ásbjörnsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH