Tippari vikunnar „Tottenham vinnur ekki 2 leiki í röð og fara varla að byrja á því núna“

  • 4. mars 2023
  • Fréttir
Tippari vikunnar er Jón Björnsson

Þá er komið að tuttugustu og sjöttu umferð Tippara vikunnar í boði Remax fasteignasölu.

Í síðustu umferð var það Ingibjörg Guðmundsdóttir sem var með sex rétta, en hún á 2 frestaða leiki inni.

Tippari vikunnar er Jón Björnsson, framkvæmdastjóri hjá Hreinsitækni.

Jón er Liverpool maður mikill.

 

Spá Jóns er eftirfarandi

 

Arsenal 3–0 Bournemouth
Arsenal vinnur þennan leik örugglega.

Aston Villa 1–0 Crystal Palace
Aston Villa vinnur.

Brentford 1–2 Fulham
Fulham er ofar í töflunni ég spái þeim sigri og Mitrovic skorar.

Brighton 1–0 West Ham
Ætli Brighton vinni ekki. Sennilega 1 – 0.

Chelsea 2–0 Leeds
Chelsea verður að vinna þennan leik og gera það 2 – 0.

Liverpool 1–1 Manchester United
Liverpool er eins og Chelsea upp við vegg og verður að vinna þennan leik. Held samt að hann United nái jafntefli í þetta sinn.

Manchester City 2–0 Newcastle
City vinnur.

Nottingham Forest 0–0 Everton
Þetta er alvöru botnslagur sem eflaust endar með jafntefli 0 – 0 eða 1 -1. Ráðlegg engum að horfa á þennan leik.

Southampton 1–2 Leicester
Southampton tapar þessum leik eftir skellinn í bikarnum.

Wolves 2–1 Tottenham
Wolves rífur sig í gang eftir skellinn á móti Liverpool. Tottenham vinnur ekki 2 leiki í röð og fara varla að byrja á því núna.

Jón á Kalda frá Hellulandi á Svínavatni. Ljósmynd: Þórir Tryggvason

 

 

Staðan:

Sigurður Matthíasson 7 réttir

Ásmundur Ernir Snorrason 7 réttir

Þórarinn Ragnarsson 7 réttir

Guðmundur Björgvinsson 6 réttir

Þorvaldur Kristjánsson 6 réttir

Ingibjörg Guðmundsdóttir 6 réttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar