Meistarar, ráðningar og landsleiðrétting
Veturinn var kaldur og snjóþungur á ýmsum stöðum þó ekkert í líkingu við árið áður.
Hinar ýmsu deildir hófu göngu sína og krýndu meistara í lok tímabilsins. Samkomutakmarkanir voru aðeins að stríða mótshöldurum í byrjun árs en það fór að létta yfir mönnum þegar tók að vora. Alls voru deildirnar níu talsins, Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum, Meistaradeild KS í hestaíþróttum, Áhugamannadeild Equsana, Suðurlandsdeildin, Vesturlandsdeildin, Uppsveitadeildin, G-Hjálmarsson deildin, Meistaradeild Líflands og æskunnar og Meistaradeild Ungmenna.
Óskasteinn frá Íbishóli var felldur eftir alvarlega hrossasótt, aðeins 17 vetra.
Fréttir bárust af því að ferskt sæði hefði verið sent frá Danmörku alla leið til Ástralíu og voru sjö hryssur þarlendis staðfestar fengnar. Notað var sæði úr þeim Styrk frá Leysingjastöðum og Kveik frá Stangarlæk.
Randi Holaker tók við af Hinriki Sigurðssyni sem verkefnastjóri Reiðmannsins hjá Endurmenntun LbhÍ. Reiðmaðurinn er alltaf að verða vinsælli og vinsælli.
Sigurbjörn Bárðarson undirritaði áframhaldandi ráðningarsamning sem A-landsliðsþjálfari LH. Fyrri samningur hans rann út í nóvember árið áður.
FEIF Youth Cup sem átti að fara fram í Sviss var frestað vegna covid.
Færeyska bætist við í WorldFeng en færeyska var tíunda tungumálið sem bætist við í gagnagrunninn.
Samningur við ríkið um markaðsverkefnið Horses of Iceland var endurnýjaður til fjögurra ára.
Vegagerðin og Landssamband hestamannafélaga skrifuðu undir samkomulag um gerð og útfærslur reiðstíga.
Á lokaviðburði Meistaradeildar í hestaíþróttum kynnti sprotafyrirtækið HorseDay samnefnt smáforrit. Sprotafyrirtækið átti eftir seinna á árinu að ljúka 100 milljóna króna hlutafjáraukningu.
Áfram hélt umræðan um blóðmerarhald
Félag hrossabænda flutti starf sitt yfir í Bændasamtök Íslands um áramótin og heitir nú Deild hrossabænda innan Bændasamtaka Íslands.
Stjórn LH sendi frá sér tilkynningu þar sem stjórnin mælti gegn skeiðkeppni í gegnum höll. Mótshaldarar voru vinsamlegast beðnir um að halda skeiðkeppni frekar utandyra.
Reiknað var nýtt kynbótamat í WorldFeng og var leiðrétting fyrir landi tekin út. Þetta hafði mikil áhrif á kynbótamat hrossa.
Keppnisnefnd LH sendi frá sér áréttingu til dómarafélaga LH varðandi túlkun um skeifnamissi í úrslitakeppni.
Eiðfaxi Vetur kom út
Valdimar Kristinsson skrifaði um offitu hrossa, ræktendur í Austurási voru teknir tali og spjallað var við knapann Erling Ó. Sigurðsson. Umfjöllun var um Hrímni frá Hrafnagili og hryssur fyrri Landsmóta eða árin 1950 – 1974. Ásamt fleiru áhugaverðu efni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH