Yngri hliðin – Kristófer Darri Sigurðsson

  • 2. júní 2021
  • Fréttir

Yngri hliðin heldur áfram að kynnast framtíðar hestafólki landsins. Hafþór Hreiðar Birgisson var síðastur til svara og skoraði hann á Kristófer Darra Sigurðsson  sem tók að sjálfsögðu áskoruninni.

Hér fyrir neðan má finna svör Kristófers sem og nafn þess sem hann skorar næst að sýna á sér hina hliðina en hver það er kemur í ljós neðst í fréttinni.

 

Fullt nafn? Kristófer Darri Sigurðsson

Gælunafn? Darri

Hestamannafélag? Sprettur

Skóli? Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

Aldur? 19 ára

Stjörnumerki? Vatnsberi

Samskiptamiðlar? Snapchat , Instagram, Facebook,

Uppáhalds drykkur? Blár Powerade

Uppáhalds matur? Hrossalund

Uppáhalds matsölustaður? Tokyo Sushi

Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Brooklyn Nine-Nine

Uppáhalds tónlistarmaður? Kid Cudi

Fyndnasti Íslendingurinn? Þegar Arnar Máni Sigurjónsson dettur í gírinn eru fáir sem toppa hann

Uppáhalds ísbúð? Huppa

Kringlan eða Smáralind? Smáralind

Hvað viltu í bragðarefinn þinn? Jarðaber, þrist og Hockey Pulver

Þín fyrirmynd? Teitur Árnason

Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt? Hákon Dan, hann er duglegur að blístra á hrossin í brautinni.

Sætasti sigurinn? Fimmgangur á Íslandsmótinu 2018 á Vorboða frá Kópavogi. Markmið sem var búið að stefna á lengi og var svo sannarlega sætur sigur.

Mestu vonbrigðin? Vitlaust val á hlífum í forkeppni á Landsmóti 2018 sem olli því að brokkið klúðraðist.

Uppáhalds lið í íslenska boltanum? Stjörnumaður af lífi og sál

Uppáhalds lið í enska boltanum? Liverpool maður allt mitt líf og stend við það í gegnum súrt og sætt.

Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju? Galsi frá sauðarkróki, við höfum verið marga hesta í keppni út frá Galsa.

Efnilegasti hestamaður/kona landsins? Stormur Ingi Teitsson

Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi? Arnar Máni tekur sig vel út sem módel allavega

Uppáhalds hestamaðurinn þinn? Pabbi er helvíti flottur í hnakknum þegar hann vandar sig.

Besti knapi frá upphafi? Diddi Bárðar.

Besti hestur sem þú hefur prófað? Ás frá Kirkjubæ

Uppáhalds staður á Íslandi? Kelduholt, sumarhús ásamt jörð í eigu Pabba.

Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? Passa að síminn sé örugglega í hleðslu.

Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum? Fylgist með Enska Boltanum og annað augað á Boccia

Í hverju varstu lélegastur/lélegust í skóla? Danska, aldrei skilið þetta tungumál.

Í hverju varstu bestur/best í skóla? Enska og íþróttir

Vandræðalegasta augnablik? Þau eru nokkur en kýs að tjá mig ekki

Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju? Arnar Máni, Arnór Dan og Konráð Axel væru fyrir valinu. Myndi sennilega deyja úr hlátri frekar en úr hungri.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Hefði geta verið atvinnumaður í fótbolta en ákvað að gefa hinum séns og tók hestamennskuna fram yfir.

Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og afhverju? Það er hún Lilja Rún Sigurjónsdóttir alveg gríðarlega metnaðarsöm og alveg ótrúlegt hvað hún nennir að snúast með bróðir sínum og nýtir öll tækifæri til að bæta sig eða læra.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndir þú spyrja? Hvað gerir þig að betri manneskju? og myndi helst vilja spyrja alla.

 

Ég skora á Hákon Dan Ólafsson

 

Ljósm: Helena Ríkey

 

 

 

Yngri hliðin – Hafþór Hreiðar Birgisson

Yngri hliðin – Egill Már Þórsson

Yngri hliðin – Arnar Máni Sigurjónsson

Yngri hliðin – Þorgils Kári Sigurðsson

Yngri hliðin – Sigurður Steingrímsson

Yngri hliðin – Jón Ársæll Bergmann

Yngri hliðin – Þorvaldur Logi Einarsson

Yngri hliðin – Júlía Kristín Pálsdóttir

Yngri hliðin – Signý Sól Snorradóttir

Yngri hliðin – Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar