Meistarar, stærð og þyngd og gæðingalist
Árið 2023 var viðburðarríkt ár á sviði hestamennskunnar. Næstu daga munum við birta örstutta annála og rifja upp tíðindi ársins. Við byrjum á síðastliðnum vetri:
Hinar ýmsu deildir hófu göngu sína og krýndu meistara í lok tímabilsins. Samkomutakmarkanir voru aðeins að stríða mótshöldurum í byrjun árs en það fór að létta yfir mönnum þegar tók að vora. Alls voru deildirnar níu talsins, Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum, Meistaradeild KS í hestaíþróttum, Áhugamannadeild Equsana, Suðurlandsdeildin, Vesturlandsdeildin, Uppsveitadeildin, G-Hjálmarsson deildin, Meistaradeild Líflands og æskunnar og Meistaradeild Ungmenna.
Landssamband hestamananfélaga hélt sína fyrstu vinnuhelgi á nýju ári þar sem skipað var í hinar ýmsu nefndir LH.
Á vinnuhelgi stjórnar LH var ákveðið að setja á fót starfshóp um hestaíþróttir fatlaðra. Er hópnum ætlað að styðja við og reyna að finna leiðir til að efla hestaíþróttir fatlaðra á Íslandi. Formaður hópsins var kjörin Sóley Margeirsdóttir stjórnarkona í LH.
Hestamenn voru ósáttir með að útsendingum Meistaradeildarinnar var hætt á RÚV.
Hlaðvarpsþátturinn Á Kaffistofunni hóf göngu sína á nýjan leik í janúar.
Landsliðin fóru á fullt að undirbúa sig fyrir nýtt keppnistímabil enda stórt ár framundan. Hekla Katharína bætti við tveimur knöpum í U-21 landsliðshópinn.
FEIF ráðstefnan var haldin í byrjun febrúar þar sem mikið var rætt um „the Social License to Operate“ og kynferðislegt áreiti. Jean-Paul Balz var kosinn nýr forseti FEIF en Gunnar Sturluson gaf ekki kost á sér aftur.
Stærð og þyngd knapa fékk töluverða umræðu í samfélaginu í byrjun árs og var birt góð grein eftir Guðrúnu Jóhönnu Stefánsdóttur, dósent við Háskólann á Hólum.
Stofnaður var starfshópur sem falið var að greina þær áskoranir og hindranir sem eru til staðar fyrir börn og unglinga sem hafa áhuga á að hefja æfingar á hestaíþróttum. Markmið hópsins var að finna leiðir til að auðvelda börnum og unglingum aðgengi að hestaíþróttinni eins og öðrum íþróttagreinum.
Búgreinaþing Bændasamtaka Íslands var haldið í lok febrúar og var Nanna Jónsdóttir valinn nýr formaður deildar hrossabænda innan BÍ. Sveinn Steinarsson hætti sem formaður deildar hrossabænda innan Bændasamtakanna (áður Félag hrossabænda) eftir að hafa gegnt þeirri stöðu í áratug.
Landssamband hestamanna kynnti ný lágmörk fyrir Íslandsmót fullorðna og ungmenna en í staðinn fyrir stöðulista var tekið upp einkunnalágmörk.
Auglýst var eftir starfsmanni útbreiðslu og kynningarmála LH og var Jónína Sif Eyþórsdóttir ráðin í kjölfarið.
Gæðingafimi LH breytti um nafn og varð að gæðingalist.
Uppfærð útgáfa af lögum, reglum og reglugerðum LH var birt á vef LH. Í þessari nýju útgáfu fékk regluverkið allmikla upplyftingu með breyttri og einfaldari framsetningu.
Nýtt verklag var kynnt varðandi DNA-sýnatökur hrossa en nú býðst öllum aðilum sem hafa réttindi til örmerkinga hrossa á Íslandi að skila DNA-sýnum inn til greiningar og úrvinnslu.
Strafshópur sem skipaður var haustið 2022 og var að ætlað greina þörfina á fjármagni til reiðvegaframkvæmda til lengri tíma og vinna tillögur út frá þeim fyrir samgönguáætlun 2023-2037 skilaði niðurstöður sínum. Var það mat starfshópsins að reiðvegamál á Íslandi er málaflokkur sem hefur verið vanfjármagnaður til lengri tíma og að uppsöfnuð þörf næmi 13.570 milljónum króna.
Eiðfaxi Vetur kom út
Tímaritið var stútfullt af alls konar efni. Birtist grein um velferð íslenska hestsins og farið var yfir ættarboga Heru 3698 frá Laugarvatni. Rúna Einarsdóttir rifjaði upp eftirminnilegustu hrossin frá sínum ferli og var Erlingur Erlingsson tekinn tali. Þrjár vinkonur skelltu sér í hestaferð í Botswana en ferðasögu þeirra er að finna í tímaritinu. Farið var yfir stöðu innanhúsmótaraðanna og var Vakri-Skjóni á sínum stað. Valdimar Kristinsson skrifaði grein þar sem hann velti fyrir sér þróun geðslagsins í íslenskum hrossum og Einar Ásgeirsson fræddi lesendur um fóðrun keppnishestsins.
Mest lesnu fréttir á vefnum voru eftirfarandi:
- „Hann mun vinna og stimpla sig inn“
- Meistaradeild Ölfushallarinnar
- „Organista ætlum við að eiga áfram og nota hann í ræktun“
- „Ræktunin stækkar jafnt og þétt“
- “Forskot Íslands bara eykst”
- „Þessar sýningar eru náttúrulega bara orðnar eins og jarðarfarir“
- Er eðlilegt að þurfa að greiða fyrir útsendingar?
- „Lagði aldrei metnað í að læra dönsku skil ekki tilganginn“
- Ráslisti fyrir fjórgang í Meistaradeild
- Hraunar frá Hrosshaga allur
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum