Sundhestur, Landsmót og brottrekstur
Þegar fór að vora fylktust hestmenn á reiðhallarsýningar sem haldnar voru víðs vegar um land. Stóðhestaveislan var á sínum stað. Í ár studdi Stóðhestaveislan fjölskyldu Guðjóns Björnssonar á Syðri-Hömrum í Ásahreppi en alls safnaðist 9.360.000 kr.
Sörlamenn eru stórhuga og hófust framkvæmdir við uppbyggingu á nýrri reiðhöll Sörla um miðjan apríl.
Ágreiningur varð um sigurvegara Meistaradeildarinnar. Töldu ákveðnir aðilar að ekki hefði verið farið eftir reglum deildarinnar þegar skorið var úr um sigurvegara.
Framhaldsskólamótið í hestaíþróttum var haldið aftur eftir margra ára pásu. Fjölbrautarskólinn við Ármúla vann mótið.
IceHorse Festival haldið í Herning í Danmörku dagana 30. mars – 2. apríl. Gríðarleg ásókn var á mótið eða voru í heildina seldir um 3.000 miðar.
Var haldin fundarferð með Elsu Albertsdóttur ræktunarleiðtoga íslenska hestsins og Nönnu Jónsdóttur formanni fagráðs í hrossarækt og deildar hrossabænda innan BÍ.
Vakið var athygli á nýrri reglu sem tók gildi um áramótin að forsenda tilnefningar til ræktunarbús ársins miðist við fulla félagsaðil í Bændasamtökunum fyrir 1. maí ár hvert.
Skráningar á kynbótasýningar ársins tókst með ágætum. Mun betur en árið á undan. Skráningar fóru hægt af stað og greinilegt að sumar sýningar voru vinsælli en aðrar. Hækkun sýningargjalda fór misvel í hestamenn en RML hækkaði m.a. sýningargjöld fyrir fullnaðardóm um 8.000 kr. úr 31.350 kr. í 39.350 kr.
Hestamannafélagið Hörður fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Dómarafélögin HÍDÍ og GDLH hafa mótmælt fyrirhuguðum breytingum á verklagi við greiðslu dómarakostnaðar sem taka áttu gildi í sumar. Í kjölfarið var breytingunum slegið á frest.
LH skoraði á alla þá sem komu að undirbúningi og hönnun Þjóðarhallarinnar í Laugardal að gera ráð fyrir hestaíþróttinni rétt eins og öðrum stórum íþróttagreinum.
Mikil óvissa ríkti um Landsmót hestamanna 2024 og hvar mótið ætti að vera haldið. Hestamannafélagið Sprettur sótti um að halda mótið árið 2022 og fékk því úthlutað en vegna covid var mótinu frestað til ársins 2024. Mikil ólga var innan félagsins vegna ákvörðunar stjórnar Spretts að ætla halda mótið á félagssvæði Spretts. Fór svo að ákveðið var að halda mótið á félagssvæði Fáks og eru Sprettur og Fákur að fara halda mótið saman sumarið 2024.
Öryggisnefnd LH hvatti mótshaldara til að halda keppni í flugskeiði utan húss.
Íslensk stjórnvöld fengu formlega áminningu frá ESA vegna blóðtöku úr hryssum.
Myndaður var starfshópur til að ræða og móta framtíð kynbótasýninga á Landsmótum
Birtur var uppfærður vegvísir við kynbótadóma fyrir árið 2023 á vef RML. M.a. voru uppfærðar reglur um leyfðan beislabúnað og reglur um tengsl milli hægs tölts og tölts hjá fimm og fjögurra vetra hrossum.
Haldinn var fyrsti fundur um stofnun Akademíu íslenska hestsins að Hólum í Hjaltadal. Skilgreint hlutverk Akademíunnar er að efla rannsóknir tengdar íslenska hestinum.
Hryssa synti út í Lundey í Skagafirði og aftur í land en Lundey 2-3 km. frá landi.
Ákveðið var að fella út þau skilyrði að mæta þurfti í úrtöku til að mega keppa á Fjórðungsmóti.
Nýtt heimsmet var sett á kynbótabrautinni þegar Agnar Þór Magnússon sýndi þar fjögurra vetra hryssu Arneyju frá Ytra-Álandi í 8,62 í aðaleinkunn. Það er hæsti dómur sem fjögurra vetra hryssa hefur hlotið hingað til.
Knapa var vikið úr íslenska landsliðshópnum en samkvæmt fréttatilkynningu frá LH var það vegna brota á aga- og siðareglum landsliðsnefndar. Knapinn var jafnframt ríkjandi heimsmeistari og átti því sæti í landsliðinu. Annar knapinn sem rekinn er úr hópnum og átti titil að verja. Vakti málið upp miklar umræður og sitt sýndist hverjum. Fyrrum formaður LH sá sig knúinn til að fjalla um annað málið.
Kristján Elvar járningarmeistari járnaði keppnishest Þórðar Þorgeirssonar í beinni útsendingu.
MAST vakti athygli á því að rekstur sæðingastöðva og fósturvísastöðva fyrir hross væri leyfisskyld starfsemi.
Eiðfaxi Vor kom út
Í blaðinu var þetta hefðbundna, stuttir sprettir og Vakri-Skjóni. Úttekt var gerð á hrossaræktinni í Bandaríkjunum og Kanada. Viðtal var við Gunnhildi Sveinbjarnardóttur sem vann Áhugamannadeild Spretts og var sigurvegurum innanhússdeildanna gerð skil. Albert Jónsson rifjaði upp eftirminnileg hross og farið var yfir sögu Evrópu- og heimsmeistaramótanna.
Mest lesnu fréttir á vefnum voru eftirfarandi:
- Sýnt verður beint frá Stóðhestaveislunni
- Stóðhestaveislan styrkir fjölskyldu Guðjóns Björnssonar
- Myndband af Kveik og Evert
- Jóhann og Evert í 9,06
- Landsmót í lausu lofti
- Takk, takk og aftur takk
- Lokaatriði á Ræktun af dýrari gerðinni
- „Þarna finnst mér forystan algerlega bregðast“
- Dagskrá Stóðhestaveislunnar
- Ásdís og Guðmar verðlaunuð
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum