Landsþing, Haustráðstefna og landsliðin

  • 31. desember 2022
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Annáll 2022 - Haust

Uppkomst um stórfellda vanrækslu á hrossum í Borgarfirði og nokkrum vikum síðar var annað alvarlegt brot á dýravelferðarlögum í Hornafirði

Járningarmannadagurinn var haldin í byrjun október sem þóttist takast vel. Fyrirlestar og vinnustofur sem opnar voru fyrir járningarmenn, dýralækna, kynbótadómara og áhugamenn. Íslandsmótið í járningum var einnig haldið og Íslandsmeistari í járningum krýndur.

Samþykkt var framkvæmdaráætlum um byggingu á nýrri reiðhöll í Sörla í Hafnarfirði

Landsþing LH var haldið í byrjun nóvember í Víðidalnum. Þingið var vel sótt og mörg málefni rædd. Guðni Halldórsson var endurkjörinn sem formaður LH og var kosin ný stjórn. Á Landsþingi var jafnframt kynnt skýrsla Landsmóts hestamanna og kom þar fram að mótið skilaði 35 milljónum í hagnaði.

Hestamannafélagið Sörli hlaut Æskulýðsbikar LH

Haustráðstefna Fagráðs var haldin í lok nóvember þar sem farið var yfir hrossaræktarárið 2022, kynnt voru niðurstöður rannsóknar um magasár í hrossum, verðlaun og viðurkenningar voru afhent ásamt því að farið var yfir sögu landsmóta og þátttöku kynbótahrossa. Í framhaldi af því voru haldnar vinnustofur þar sem rædd var þátttaka kynbótahrossa á Landsmótum og niðurstöður hvers hóps kynntar.

Fimmtán bú voru tilnefnd sem ræktunarbú ársins og voru það Syðri-Gegnishólar / Ketilsstaðir sem hlutu titilinn.

Knapar ársins voru heiðraðir á verðlaunahátíð LH sem haldin var í félagsheimili Fáks. Árni Björn Pálsson er knapi og íþróttaknapi ársins, Sigurður Sigurðarson gæðingaknapi ársins, Konráð Valur Sveinsson skeiðknapi ársins, Helga Una Björnsdóttir kynbótaknapi ársins og Benedikt Ólafsson efnilegasti knapi ársins. Syðri-Gegnishólar/Ketilsstaðir var valið keppnishestabú ársins.

Hólaskóli og Bændasamtök Íslands gerðu með sér samkomulag um að Sleipnisbikarinn yrði geymdur í húsakynnum skólans. Bikarinn er til sýnis í Sögusetri íslenska hestsins.

Sigvaldi Lárus Guðmundsson var útnefndur reiðkennari ársins

Landsliðshópar voru kynntir, A Landsliðshópur Íslands var kynntur í lok október og U-21 árs hópurinn um miðjan nóvember.

Útflutingur var minni þetta árið en í fyrra. Háttdæmdir hestar flugu úr landi á haustmánuðum en það voru t.d. þeir Viðar frá Skör, hæst dæmdi íslenski hesturinn, Blakkur frá Þykkvabæ og Landsmótssigurvegarinn Börkur frá Fákshólum.

A landsliðið hélt menntadaginn „Leiðin að gullinu“ þar sem knapar landsliðsins voru með sýnikennslur og var viðburðurinn fjáröflun fyrir landsliðið.

Upp kom hópsýking í hrossum í lok nóvember sem olli óhug meðal hestamanna. Eftir rannsóknir benti allt til þess að sýkingin væri af völdum eiturmyndnandi jarðvegsbakteríu, Clostridium spp, en þessi tegund baktería myndar dvalargró og má ætla að þau hafi verið í umtalsverðu magni á feldi hrossanna og komist í gegnum húð þegar hrossin voru sprautuð með ormalyfinu. Eftir þetta ráðlagði MAST hestamönnum frá því að sprauta hross með ormalyfi undir húð.

Um miðjan desember skapaðist umræða um hugtakið The Social License to operate (eða leyfi samfélagsins til að starfa) en alþjóðasamtökin FEIF hafa áhyggjur að því hvernig umræðan sé að þróast.

Eiðfaxi Haust kom út

Í bókinni var viðtal við afreksknapana og systkini Ásmund Erni, Jóhönnu Margréti og Signý Sól Snorrabörn. Viðtal var við kynbótaknapann Þorgeir Ólafsson og Vignir Siggeirsson á Hemlu rifjaði upp með okkur eftirminnilegustu hrossin sem hann hefur riðið í gegnum tímann. Þorvaldur Kristjánsson skrifaði um gullaldar kynslóð stóðhesta, Rósa Birna Þorvaldsdóttir tók viðtal við ferðaþjónustu bændur á Kálfhóli og Óðinn Örn Jóhannsson spjallaði við Aksel Vibe járningameistara. Þetta ásamt fullt af fleiru áhugaverðu efni.

Mest lesnu fréttirnar á eidfaxi.is veturinn 2022

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link