Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum „Er svakalegur sundmaður“

  • 24. janúar 2022
  • Fréttir
Yngri hliðin - Glódís Líf Gunnarsdóttir

Yngri hliðin heldur áfram að kynnast framtíðar hestafólki landsins. Þórgunnur Þórarinsdóttir var síðust til að svara og skoraði hún á Glódísi Líf Gunnarsdóttur sem tók að sjálfsögðu áskoruninni.

Hér fyrir neðan má finna svör Glódísar sem og nafn þess sem hann skorar næst á að sýna á sér hina hliðina en hver það er kemur í ljós neðst í fréttinni.

 

Fullt nafn? Glódís Líf Gunnarsdóttir 

Gælunafn? Gló Gló 

Hestamannafélag? Máni

Skóli? Fjölbrautaskólinn Við Ármúla

Aldur? Fædd 2005

Stjörnumerki? Vatnsberi

Samskiptamiðlar? Instagram, Facebook og Snapchat

Uppáhalds drykkur? Mountain dew

Uppáhaldsmatur? Pizza 

Uppáhalds matsölustaður? Italia

Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Grey’s Anatomy

Uppáhalds tónlistarmaður? Sia

Fyndnasti Íslendingurinn? Pétur Jóhann

Uppáhalds ísbúð? Ísbúð Vesturbæjar

Kringlan eða Smáralind? Smáralindin

Hvað viltu í bragðarefinn þinn? Jarðaber, banana og kiwi

Þín fyrirmynd? Foreldrar mínir

Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt? Enginn

Sætasti sigurinn? 1.Sæti T4 á Reykjavikurmeistara mótinu 2019 á Magna Frá Spágilsstöðum 

Mestu vonbrigðin? Engin

Uppáhalds lið í íslenska boltanum? Fylgist ekki með íslenska boltanum

Uppáhalds lið í enska boltanum? Liverpool

Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju? Kötlu Frá Ketilsstöðum yfirburða gæðingur

Efnilegasti hestamaður/kona landsins? Það eru margir

Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi? Helena Rán

Uppáhalds hestamaðurinn þinn? Bergur Jónsson  

Besti knapi frá upphafi? Jakob svavar, Árni Björn, Bergur og Olil  

Besti hestur sem þú hefur prófað? Flygill Frá Stóra-Ási ásamt mörgum öðrum sem ég hef kynnst og þjálfað

Uppáhalds staður á Íslandi? Sveitin

Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? Fara með Tuma út að pissa

Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum? Varla neitt 

Í hverju varstu lélegastur/lélegust í skóla? Ensku

Í hverju varstu bestur/best í skóla? Íþróttum

Vandræðalegasta augnablik? Ég hoppaði á bak á hesti í útigangi og allt stóðið fór af stað og èg með á baki og datt næstum í mýrardrullu og með fullt af áhorfendum

Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju? Þórgunni, Helenu og Kolbrúnu

Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Er svakalegur sundmaður

Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju? Ríkarður Halldórsson, Algjör meistari

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndir þú spyrja? Ég mundi spurja Olil hvort ég mætti prufa Álfaklett

 

Èg skora á Sigurbjörgu Helgadóttur

 

Yngri hliðin – Þórgunnur Þórarinsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar