Hin hliðin – Ólafur Þórisson

  • 28. maí 2021
  • Fréttir

Hin hliðin heldur áfram hér á Eiðfaxa þar sem við fáum að kynnast nýjum hliðum á hestafólki um land allt.

Að þessu sinni er það Ólafur Þórisson tamningarmaður, bóndi og félagsmálamaður í Miðkot sem situr fyrir svörum.

 

Fullt nafn: Ólafur Þórisson

Gælunafn: Óli Miðkoti

Starf: Tamningarmaður, bóndi og félagsmálamaður.

Aldur: afstæður en fæddur 1977

Stjörnumerki: Bogamaður

Blóðflokkur: ekki hugmynd

Skónúmer:7 og hálft í redrock

Hjúskaparstaða: Giftur og þrjú börn

Uppáhalds drykkur: kúamjólk, ísköld beint úr mjólkurtanknum

Uppáhalds matur: grilluð folaldalund

Uppáhalds matsölustaður: heima er best

Hvernig bíl áttu: Nissan og Ford

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: spaugstofan

Uppáhalds leikari:Örn Árnason

Uppáhalds Íslenski  tónlistarmaðurinn: Bubbi Mortens

Uppáhalds erlendi tónlistarmaðurinn:   Freddie Mercury

Uppáhalds lag:mörg af Þjóðhátíðarlögunum gegnum árin

Fyndnasti Íslendingurinn: Elli Árnason og Beggi þegar þeir byrja í eftirhermunum

Hvað viltu í bragðarefinn þinn: ís

Þín fyrirmynd: Allir þeir sem hafa heiðarleikan í fyrirrúmi í sinni framkomu.

Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt:  Allir þeir sem vinna á óheiðarlegan hátt og áttu það ekki skilið.

Sætasti sigurinn:  Parafimi í Suðurlandsdeildinni 2021

Mestu vonbrigðin:   Lenda í 2.sæti hvar og hvenær sem er.

Uppáhalds lið í íslenska boltanum: KFR

Uppáhalds lið í enska boltanum: Arsenal

Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju: Orri frá Þúfu, liturinn að sjálfssögðu

Efnilegasti hestamaður/kona landsins:  Öll þau börn sem koma til með að halda heiðri hestamennskunnar á lofti um ókomin ár

Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi:  konan mín

Besti knapi frá upphafi:  Það er erfitt að gera uppá milli mín og allra hinna.

Mesti gæðingur allra tíma að þínu mati:Toppur frá Miðkoti sem var minn fyrsti hestur

Besti hestur sem þú hefur prófað:  Stæll frá Miðkoti og Orri frá Þúfu

Uppáhalds staður á Íslandi:hálendið eins og það leggur sig.

Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa:loka augunum

Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum:já eins mikið og ég get.

Í hverju varstu lélegastur/lélegust í skóla:tungumálum

Í hverju varstu bestur/best í skóla:stærðfræði

Vandræðalegasta augnablik: var eitthvað utan við mig á Landsþingi LH 2016 og greiddi atkvæði á móti ársreikninum sambandsins meðan ég var sjálfur gjaldkeri LH.

Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju:  Börnin mín Viktor Mána, Jakob Freyr, Evu Dögg, það verður sko ekki leiðinlegt með þeim. Þá fær konan líka gæðastund frá okkur hinum.

Sturluð staðreynd um sjálfa(n) þig: Féll næstum á stúdentsprófi í dönsku. Fékk 4,5 og hækkaður upp í 5.0.

Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju:
Maður er alltaf að kynnast nýju og nýju fólki í hestamennskunni sem kemur manni á óvart. Það sem er svo skemmtilegt við hestamenn og konur er hvað við eru fjölbreytileg og með misjafnar áherslur á hvað hestamennskan gengur útá. Allir geta fundið sína leið og haft gaman af. Það er það sem er svo mikilvægt í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur er að eiga skemmtilegar samverustundir og minningar í gegnum hestamennskunna.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndirðu spyrja:  Ég myndi spyrja Guðna formann LH. Hvernig líkar þér formansstarfið?

Ég skora á Eygló Örnu Guðnadóttir í Þúfu í landeyjum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar