„Æfði ballet í mörg ár“

  • 28. september 2022
  • Fréttir
Yngri hliðin - Kolbrún Sif Sindradóttir

Yngri hliðin heldur áfram að kynnast framtíðar hestafólki landsins.

Kolbrún Katla Halldórsdóttir var síðust til að svara og skoraði hún á Kolbrúnu Sif Sindradóttir sem tók að sjálfsögðu áskoruninni.

Hér fyrir neðan má finna svörin frá Kolbrúnu Sif sem og nafn þess sem hún skorar næst á að sýna á sér hina hliðina.

 

Fullt nafn? Kolbrún Sif Sindradóttir

Gælunafn? Kolla

Hestamannafélag? Sörli

Skóli? Setbergsskóli

Aldur? 15 ára

Stjörnumerki? Meyja

Samskiptamiðlar? Instagram, snapchat, tiktok

Uppáhalds drykkur? Vatn

Uppáhaldsmatur? Pasta

Uppáhalds matsölustaður? Subway

Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Gilmore girls

Uppáhalds tónlistarmaður? Kaleo

Fyndnasti Íslendingurinn? Pétur Jóhann

Uppáhalds ísbúð? Huppa

Kringlan eða Smáralind? Kringlan

Hvað viltu í bragðarefinn þinn? Jarðaber, snickers og lakkrís

Þín fyrirmynd? Foreldrar mínir

Stóðhestabókin eða Hrútaskráin? Stóðhestabókin

Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt? Einbeiti mér bara að sjálfri mér

Sætasti sigurinn? 1.sæti á WR íþróttamóti Sleipnis 2022 á Styrk frá Skagaströnd

Mestu vonbrigðin? Ætlaði að standa mig betur á landsmóti 2022

Uppáhalds lið í íslenska boltanum? Fylgist ekki með íslenska boltanum

Uppáhalds lið í enska boltanum? Liverpool

Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju? Bárð frá Melabergi af því hann er óvenju fallegur og með svaka hreyfingar.

Efnilegasti hestamaður/kona landsins? Mjög margir efnilegir get ekki valið einn

Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi? Valdís frænka mín

Uppáhalds hestamaðurinn þinn? Helga Una Björnsdóttir og Hanna Rún Ingibergsdóttir.

Besti knapi frá upphafi? Sigurbjörn Bárðason.

Besti hestur sem þú hefur prófað? Kolfinnur frá Efri-Gegnishólum.

Uppáhalds staður á Íslandi? Hesthúsið mitt.

Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? Loka augunum

Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum? Nei

Í hverju varstu lélegastur/lélegust í skóla? Dönsku

Í hverju varstu bestur/best í skóla? Íþróttum

Vandræðalegasta augnablik? Get ekki valið eitt þau eru svo mörg.

Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju? Valdísi Maríu, Kolbrúnu Kötlu og Helenu Rán

Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Æfði ballet í mörg ár.

Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju? Hanna Rún Ingibergsdóttir, frábær kennari.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndir þú spyrja? Ég myndi spyrja Árna Björn hvort ég mætti prófa Ljúf frá Torfunesi.

 

Ég skora á Fanndísi Helgadóttir

 

Yngri hliðin – Kolbrún Katla Halldórsdóttir

Yngri hliðin – Herdís Björg Jóhannsdóttir

Yngri hliðin – Svandís Aitken Sævarsdóttir

Yngri hliðin – Helena Rán Gunnarsdóttir

Yngri hliðin – Sigrún Helga Halldórsdóttir

Yngri hliðin – Lilja Rún Sigurjónsdóttir

Yngri hliðin – Sigurbjörg Helgadóttir

Yngri hliðin – Glódís Líf Gunnarsdóttir

Yngri hliðin – Þórgunnur Þórarinsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar