Íslandsmót, knapa skipti og Heimsmeistaramót
Íslandsmótin voru haldin á Selfossi og á Hellu. Í fyrsta sinn var gefinn Íslandsmeistarahringurinn, þrír knapar hlutu FT fjöðrina og Íslandsmeistarar voru krýndir.
Fólk fylktist á Fjórðungsmót á Austurlandi.
Anna Bretaprinsessa veitti verðlaun á breska meistaramótinu.
Í ár eru tíu ár frá því að Hestafræðideild Háskólans á Hólum fór að bjóða upp á BS nám í reiðmennsku og reiðkennslu.
Tíu fulltrúar frá Íslandsi tóku þátt í FEIF Youth Camp í ár.
Mikil eftirspurn var að koma hrossum til dóms miðsumars á Suðurlandi og var bætt við sýningardögum á Hellu.
Aðilarlönd FEIF kynnt landsliðin sín. Lið hollendinga vakti mikla athygli og þá sérstaklega knapinn Cora Wijams sem var að keppa í fyrsta sinn á Heimsmeistaramóti 79 ára gömul.
Kynning íslenska landsliðsins var í beinni útsendingu á Eiðfaxa. Landsliðið átti þó eftir að taka nokkrum breytingum. Guðmundur Björgvinsson, ríkjandi heimsmeistari, dró sig úr liðinu. Páll Bragi Hólmarsson dró sig úr liðinu og inn kom í staðinn Viðar Ingólfsson á Þór frá Stóra-Hofi. Daníel Gunnarsson á Einingu frá Einhamri bætist síðan við í hópinn eftir að Ingibergur Árnason dró sig úr liðinu.
Stymir Árnason sagði af sér sem liðstjóri Þýskalands og sem formaður íþróttadeildar IPZV í Þýskalandi útaf erfiðum málum innanhús hjá félaginu.
Ákveðið var að setja af stað nýja deild en sú deild var hugsuð milli Áhugamannadeildarinnar og Meistaradeildar í hestaíþróttum. Nýja deildin hlaut nafnið 1. deildin í hestaíþróttum og hefur göngu sína á nýju ári.
Heimsmeistaramót íslenska hestsins hófst í byrjun ágúst. Sigurför fyrir íslenska landsliðið sem landið ellefu gullum, fjórum silfrum og ef efstu sex kynbótahrossunum voru fimm þeirra ræktuð á Íslandi. Danska landsliðið vann liðabikarinn og Austurríkismenn unnu fyrsta gullið sitt í tæp 30 ár. Á mótinu var einnig rannsóknarteymi frá Háskólanum á Hólum sem rannsakaði hlutfallið á milli þyngdar knapa og hrossa á mótinu.
Sögusetur íslenska hestsins hlaut 3.000.000 kr. styrk úr Hvata, styrktarsjóði til verkefna á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðherra.
Frumsýnd var ný íslensk heimildamynd, Konungur fjallanna, þar sem hrossaræktandinn Kristinn Guðnason var í aðalhlutverki.
Háskólinn á Hólum rannsakaði áhrif hesta á fólk en verkefni er hluti af rannsóknaátaki við háskólann sem tengjast áhrifum hesta á fólk.
Ný og spennandi viðbót bættist við í WorldFeng en nú er hægt að skrá hefðbundnar mælingar hrossa og vista í gagnabankanum – utan reglulegra kynbótasýninga.
Metskráning var á sænska meistaramótinu í gæðingakeppni.
Eiðfaxi Sumar kom út
Í Eiðfaxa sumar var viðtal við Viktoríu Huld Hannesdóttur sem hafði slegið í gegn á hesti sínum Þin frá Enni. Helgi Eggertsson í Kjarri rifjaði upp eftirminnileg hross og Ólafur Gunnar Helgason bóndi á Helgastöðum var tekinn talin en hann er tiltölulega nýr í greininni. Umfjöllun um Heimsmeistaramótið var á sínum stað og Vakri-Skjóni. Grein eftir Elsu Albertsdóttur og Þorvald Árnason birtist í blaðinu en hún fjallaði um erfðaframför í íelsnka hrossastofninum.
Mest lesnu fréttir á vefnum voru eftirfarandi:
- Íslenska landsliðið klárt
- Guðmundur mætir ekki á Heimsmeistaramótið
- „Hrossið á alltaf að njóta vafans svo við ákváðum að draga okkur úr liðinu“
- “Þetta er algjör draumur”
- „Lá nú bara í sófanum seint um kvöld að horfa á sjónvarpið þegar Sigurbjörn hringdi“
- Strákarnir okkar klikka ekki
- Breytingar á landsliðinu
- Kraftur frá Bringu fallinn frá
- „Það vantaði bara heilt yfir okkar ferskleika“
- Landsliðið mitt
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH