Fær sér Redbull fyrir svefninn
Hin hliðin heldur áfram hér á Eiðfaxa þar sem við fáum að kynnast nýjum hliðum á hestafólki um land allt. Að þessu sinni er komið að hrossabóndanum Kristni Guðnasyni eða Kristni í Skarði eins og hann er oft kallaður.
Fullt nafn: Kristinn Guðnason
Gælunafn: Í gamla daga var ég stundum kallaður Diddi
Starf: Bóndi
Aldur: 71 árs
Stjörnumerki: Bogamaður
Blóðflokkur: Ekki hugmynd
Skónúmer: Marjolijn segir að þeir séu nr 44, annars hefði ég líklega ekki vitað svarið
Hjúskaparstaða: Sambúð
Uppáhalds drykkur: Redbull
Uppáhalds matur: Vænt lambalæri með brúnuðum kartöflum og brúnni sósu
Uppáhalds matsölustaður: Heima hjá mér
Hvernig bíl áttu: Mitsubitshi L200, svaka kaggi og vel með farinn
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Fréttir eða að horfa á Meistaradeildina á fimmtudagskvöldum
Uppáhalds leikari: Jón Sigurbjörnsson og Eastwood, báðir frábærir
Uppáhalds íslenski tónlistarmaðurinn: Geirmundur, skagfirska sveiflan klikkar aldrei þó ég hafi nú ekki gert mikið af því að stíga sporin við hana
Uppáhalds erlendi tónlistarmaðurinn: Presley
Uppáhalds lag: Ekkert sem kemur upp í hugann
Fyndnasti Íslendingurinn: Það geta orðið ansi líflegar og skemmtilega umræður við kaffiborðið í Árbæjarhjáleigu þegar félagarnir Daníel Jónsson og Óðinn Örn koma þar saman
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Er meiri sjeik maður, fæ mér ýmist karamellu eða ananas bragð
Þín fyrirmynd: Margar flottar fyrirmyndir sem maður hefur átt í gegnum tíðina, enginn einn sem mér dettur í hug ofar öðrum
Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt: Maður er svo geðgóður að það tekur því ekki ekki að pirra sig á öðrum
Sætasti sigurinn: Það kemur upp í hugann gull í 800 metra stökki á Fjórðungsmóti í Faxaborg
Mestu vonbrigðin: Þegar Rakel Nathalie komst ekki í milliriðla á Landsmóti 2012 í ungmennaflokki
Uppáhalds lið í íslenska boltanum: Valur, afi gamli var í Val og ég hef bara haldið mig við það, en það verður að viðurkennast að ég er ekki dyggasti stuðningsmaðurinn
Uppáhalds lið í enska boltanum: Ekki nokkur, alveg sama hvaða fífl hlaupa þarna um
Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju: Það færi eftir í hvað ég væri að velja mér. Ef ég væri að velja mér duglegan smalahest þá Eldur frá Hreiðarvatni. En í gæðingakeppni þá Fáni frá Hala. Margir góðir hestar sem koma í hugann sem allir einstakir á sínu sviði
Efnilegasti hestamaður/kona landsins: Ótalmargir flottir og efnilegir ungir hestamenn- og konur, alltaf jafn gaman að horfa á þetta unga fólk sem er orðið jafn klárt og raun ber vitni
Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi: Mér finnst Jóhanna Margrét Snorradóttir stórglæsilegur knapi
Besti knapi frá upphafi: Að mínu mati er Árni Björn að verða einn af betri knöpum sem við höfum átt, að öðrum ólöstuðum
Mesti gæðingur allra tíma að þínu mati: Úff, erfitt að velja en Gýmir frá Vindheimum kom fyrst upp í hugann
Besti hestur sem þú hefur prófað: Reykur frá Hoftúni
Uppáhalds staður á Íslandi: Jökulgil á Landmannaafrétti
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Fá mér einhvern góðan nammimola og skola því niður með Redbull
Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum: Nei, langt því frá
Í hverju varstu lélegastur/lélegust í skóla: Í barnaskóla var það í íslensku en svona á eldri árum er það erlend tungumál, langt því frá mín sterkasta hlið
Í hverju varstu bestur/best í skóla: Kristnifræðin og biblíusögurnar. Gekk líka alltaf ágætlega í reikning
Vandræðalegasta augnablik: Sofnaði á símafundi Landssamtaka sauðfjárbænda, samfundarmönnum mínum tókst ekki að vekja mig og þurfti því að aflýsa fundinum
Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju: Guðmund í Skálakoti, Vigni Siggeirs og Sigga Sæm. Það yrði sko ekki dauð stund á þeirri eyju og við myndum ekkert vera að drífa okkur heim
Sturluð staðreynd um sjálfa(n) þig: Hef mjög gaman af bókmenntaþættinum Kiljunni, ekki verra að hafa Haribo snuddur og Redbull við hönd
Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju: Víkingur Gunnarsson. Stórsnillingur!
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndirðu spyrja: Það væri gaman að spyrja hestamenn framtíðarinnar hvernig íslensku hesturinn hefur þróast eftir um 50 ár.
Ég skora á sjálfan Tryggva Ágústsson, ættaðan frá Brúnastöðum, til að segja okkur frá sinni hinni hlið.
Hin hliðin – Angantýr Þórðarson
Hin hliðin – Agnar Snorri Stefánsson
Hin hliðin – Heimir Gunnarsson
Hin hliðin – Hrafnhildur P Þorsteinsdóttir
Hin hliðin – Sylvía Sigurbjörnsdóttir
Hin hliðin – Telma L. Tómasson
Hin hliðin – Hulda Gústafsdóttir
Hin hliðin – Eygló Arna Guðnadóttir
Hin hliðin – Siguroddur Pétursson
Hin hliðin – Páll Bragi Hólmarsson
Hin hliðin – Sigríður Pjetursdóttir
Hin hliðin – Pjetur Nikulás Pjetursson
Hin hliðin – Fjóla Viktorsdóttir
Hin hliðin – Sigurður Sigurðsson
Hin hliðin – Halldór Victorsson
Hin hliðin – Bríet Guðmundsdóttir
Hin hliðin – Óli Pétur Gunnarsson