„Ætlaði að verða rokkstjarna“
Hin hliðin heldur áfram hér á Eiðfaxa þar sem við fáum að kynnast nýjum hliðum á hestafólki um land allt. Að þessu sinni er komið að skagfirðingnum Friðgeiri Inga Jóhannssyni.
Fullt nafn: Friðgeir Ingi Jóhannsson
Gælunafn: Ekkert sem hefur fest við mig, einhverjir voru að vinna með Fribba nafnið.
Fæðingardagur og ár: 21 september 1979
Hjúskaparstaða: Í sambúð
Menntun: Hólaskóli
Starf: Hestamaður
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór: Rokkstjarna
Hestamannafélag: Skagfirðingur
Stjörnumerki: Meyja
Skónúmer: 43
Hvernig bíl áttu: Toyota Tacoma
Klukkan hvað ferðu á fætur: oftast of snemma finnst mér
Uppáhalds árstími: Vorið
Te eða kaffi: Kaffi
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Jarðarber og tromp
Uppáhalds drykkur: Vatn og bjór
Uppáhaldsmatur: Folaldasteik
Uppáhalds matsölustaður: Bláfell
Besta lyktin: Hvergi betri lykt en af snoppunni á hestum
Versta lyktin: Ælulykt
Bað eða sturta: Sturta
Þín fyrirmynd: Engin sérstök en mjög mikið af fólki sem hefur góð áhrif á mann. Til dæmis lít ég mikið upp til foreldra minna.
Lífsmottó: Vertu hress, ekkert stress
Í hverju varstu lélegastur/lélegust í skóla: algebru
Í hverju varstu bestur/best í skóla: Íþróttum og tungumálum
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Banshee
Uppáhalds leikari: Morgan Freeman
Uppáhalds Íslenski tónlistarmaðurinn: Bubbi
Uppáhalds erlendi tónlistarmaðurinn: Úff margir Uppáhalds en ef ég þarf að velja einn þá er það Kurt Cobain
Uppáhalds lag: The man who sold the world
Hvaða lag kemur þér alltaf í stuð: Lust for life með Iggy Pop
Fyndnasti Íslendingurinn: Jón Gnarr
Uppáhalds staður á Íslandi: Skagafjörðurinn
Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Ég hef ferðast mikið um heiminn en ekkert slær út Íslandi.
Hvað finnst þér vanmetið: Hreinskilni
En ofmetið: Soðinn fiskur og Sjálfstæðisflokkurinn
Uppáhalds lið í íslenska boltanum: Neisti
Uppáhalds lið í enska boltanum: Man Utd
Efnilegasti hestamaður/kona landsins: Guðmar Freyr Magnússon
Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi: Freyja Amble Gisladottir
Besti knapi frá upphafi: Gísli Gíslason
Mesti gæðingur allra tíma að þínu mati: Get ekki gert upp á milli en í minningunni eru skeið sprettirnir hjá Galsa frá Sauðárkróki fjögra vetra ógleymanlegir. En svo eru svo margir sem hafa heillað mann í gegnum tíðina.
Besti hestur sem þú hefur prófað: Hef verið heppin í gegnum tíðina að fá að þjálfa og prófa marga góða hesta. Síðasta sumar fékk ég til dæmis að prófa Trymbil frá Stóra Ási og Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum. Það var alls ekki leiðinlegt.
Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju: Kolfinnur frá Kjarnholtum mætti vera reiðhestur í hesthúsinu hjá okkur
Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum: Fótbolta og landsleikjum í handbolta
Við hvað ertu hrædd/ur: Aldrei hræddur, aldrei kalt eða jú er lofthræddur og ekki vel við djúpt vatn og kannski nokkra aðra hluti.
Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt: Þeir sem láta bíða eftir sér
Sætasti sigurinn: Að komast á pall á Íslandsmóti í borðtennis
Mestu vonbrigðin: Að Danir skyldu ekki vinna Frakkana
Stóðhestabókin eða Hrútaskráin: Stóðhestabókin
Mesta afrek þitt í lífinu: Dóttir mín
Besta ráð sem þér hefur verið gefið: Að hafa gaman af lífinu
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Stilla vekjaraklukku
Vandræðalegasta augnablikið: margt kemur til greina og flest ekki prenthæft en læt eina saklausa fylgja þegar ég hélt að ég væri einn heima og horfði á Guns n Roses tónleika í hvínandi botni í stofunni klæddur eins og Axl Rose bara í hermannaklossum og hjólabuxum með tóbaksklút á hausnum og gargandi í kústsskaft og í einum snúningnum tók ég eftir að það voru komnir gestir sem fengu óvænta tónleika
Ætlar þú á Landsmót 2022: Pottþétt
Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju: Sólon Morthens, hann er svo flinkur að veiða og Didda Kokk til að elda og svo Freyju til að hlýja mér
Sturluð staðreynd um sjálfa(n) þig: Er loðnari á tánum en kollinum
Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju: Sólon Morthens, fallegur að innan þrátt fyrir hrjúft yfirbragð
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndir þú spyrja: Bill Gates, viltu styðja mig fjárhagslega?
Hvað ætlar þú að gera um helgina: Þarf að skreppa suður
Skora á danska Dalvíkingin Agnar Snorra Stefánsson
Hin hliðin – Heimir Gunnarsson
Hin hliðin – Hrafnhildur P Þorsteinsdóttir
Hin hliðin – Sylvía Sigurbjörnsdóttir
Hin hliðin – Telma L. Tómasson
Hin hliðin – Hulda Gústafsdóttir
Hin hliðin – Eygló Arna Guðnadóttir
Hin hliðin – Siguroddur Pétursson
Hin hliðin – Páll Bragi Hólmarsson
Hin hliðin – Sigríður Pjetursdóttir
Hin hliðin – Pjetur Nikulás Pjetursson
Hin hliðin – Fjóla Viktorsdóttir
Hin hliðin – Sigurður Sigurðsson
Hin hliðin – Halldór Victorsson
Hin hliðin – Bríet Guðmundsdóttir
Hin hliðin – Óli Pétur Gunnarsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH