„Ég er margfaldur Íslandsmeistari í körfubolta“

  • 1. desember 2022
  • Fréttir
Yngri hliðin á Bergey Gunnarsdóttir

Yngri hliðin heldur áfram að kynnast framtíðar hestafólki landsins.

Katla Sif Snorradóttir var síðust til að svara og skoraði hún á Bergey Gunnarsdóttir sem tók að sjálfsögðu áskoruninni.

Hér fyrir neðan má finna svörin frá Bergey sem og nafn þess sem hún skorar næst á að sýna á sér hina hliðina.

 

Fullt nafn? Bergey Gunnarsdóttir

Gælunafn? Bergey dóttir Gunna Eyjólfs

Hestamannafélag? Hestamannafélagið Máni

Skóli? Háskólinn á Hólum

Aldur? 19 ára

Stjörnumerki? Steingeit

Samskiptamiðlar? Nota mest Snapchat, Instagram og Messenger

Uppáhalds drykkur? Rauður Collab

Uppáhaldsmatur? Hunangs grísasneiðar á sólríku sumarkvöldi

Uppáhalds matsölustaður? Subway

Uppáhalds sjónvarpsþáttur? The Office eða Stranger Things

Uppáhalds tónlistarmaður? Harry Styles

Fyndnasti Íslendingurinn? Katla Sif Snorradóttir

Uppáhalds ísbúð? Ísbúð Huppu

Hvað viltu í bragðarefinn þinn? Fæ mér oft mismunandi en uppáhalds er karamelludýfa, hindber og daim

Kringlan eða Smáralind? Smáralind, kringlan er hálfgert völundarhús

Þín fyrirmynd? Jóhanna Margrét Snorradóttir, hún er nefnilega ekki aðeins snilldar knapi, heldur er hún frábær manneskja í alla staði

Stóðhestabókin eða Hrútaskráin? Stóðhestabókin

Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt? Enginn sem fer svona mikið í taugarnar á mér

Sætasti sigurinn? Reið A-úrslit í Tölti T1 ungmenna á Reykjavíkurmeistaramótinu 2022

Mestu vonbrigðin? Tölt T1 Íslandsmót 2022

Uppáhalds lið í íslenska boltanum? Keflavík

Uppáhalds lið í enska boltanum? Liverpool

Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju? Hring frá Gunnarsstöðum, hann er í miklu uppáhaldi hjá okkur pabba og eigum við nokkur hross undan honum

Efnilegasti hestamaður/kona landsins? Signý Sól Snorradóttir

Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi? Mamma og Pabbi

Uppáhalds hestamaðurinn þinn? Signý Sól Snorradóttir

Besti knapi frá upphafi? Helga Una Björnsdóttir

Besti hestur sem þú hefur prófað? Flikka frá Brú, heimaræktaður gæðingur

Uppáhalds staður á Íslandi? Hesthúsið mitt

Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? Gá hvort ég hafi ekki örugglega stillt vekjaraklukku.

Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já, ég var í körfubolta í 10 ár og hef ennþá mjög gaman af íþróttinni

Í hverju varstu lélegust í skóla? Dönsku eða Atferlisfræði

Í hverju varstu best í skóla? Ensku

Vandræðalegasta augnablik? Þegar ég datt af baki í keppni í barnaflokki

Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju? Pabba minn, mömmu og Önnu Margréti Geirsdóttur

Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Ég er margfaldur Íslandsmeistari í körfubolta.

Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju? Signý Sól Snorradóttir, það fer ekki mikið fyrir henni í almenning en ég hlæ sjaldan jafn mikið og þegar ég er með henni.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndir þú spyrja? Ég myndi spurja skjónu hvað hún væri alltaf að stressa sig svona á hlutunum.

 

Ég skora á Hrund Ásbjörnsdóttur

 

 

 

Yngri hliðin – Katla Sif Snorradóttir

Yngri hliðin – Sara Dís Snorradóttir

Yngri hliðin – Kolbrún Sif Sindradóttir

Yngri hliðin – Kolbrún Katla Halldórsdóttir

Yngri hliðin – Herdís Björg Jóhannsdóttir

Yngri hliðin – Svandís Aitken Sævarsdóttir

Yngri hliðin – Helena Rán Gunnarsdóttir

Yngri hliðin – Sigrún Helga Halldórsdóttir

Yngri hliðin – Lilja Rún Sigurjónsdóttir

Yngri hliðin – Sigurbjörg Helgadóttir

Yngri hliðin – Glódís Líf Gunnarsdóttir

Yngri hliðin – Þórgunnur Þórarinsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link