„Jákvæðar hugsanir eru mikilvægar“
Hin hliðin heldur áfram hér á Eiðfaxa þar sem við fáum að kynnast nýjum hliðum á hestafólki um land allt.
Að þessu sinni er það Bjarni Maronsson sem situr fyrir svörum og sýnir á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Bjarni Pétur Maronsson
Gælunafn: Stundum kallaður Bjarni Mar.
Starf: Atvinnulaus sökum aldurs
Aldur: 72 ára
Stjörnumerki: Meyja
Blóðflokkur: Veit ekki
Skónúmer: 46
Hjúskaparstaða: Í sambúð
Uppáhalds drykkur: Vatn
Uppáhaldsmatur: Siginn fiskur með selspiki
Uppáhalds matsölustaður: Pass
Hvernig bíl áttu: Skoda
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Hrúturinn Hreinn
Uppáhalds leikari: Veiga á Mannskaðahóli
Uppáhalds íslenski tónlistarmaðurinn: Geirmundur Valtýsson
Uppáhalds erlendi tónlistarmaðurinn: Fats Domino
Uppáhalds lag: Þau eru mörg, t.d. „Áfram veginn“
Fyndnasti Íslendingurinn: Laddi
Stóðhestabókin eða Hrútaskráin: Geri ekki upp á milli þeirra bókmenntaverka
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Pass
Þín fyrirmynd: Gott fólk
Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt: Pass
Sætasti sigurinn: Hef lítið keppt á hesti. Minnst þó keppni í 800 metra brokki á Vindheimamelum fyrir löngu síðan. Þá kepptum við Jón á Vatnsleysu á gangnahestunum og riðum aðra keppendur algerlega af okkur. Hestur Jóns var sjónarmun á undan mínum í mark. Eftir þetta var brokk lagt af sem keppnisgrein á Melunum.
Mestu vonbrigðin: Rækta ekki vonbrigði
Uppáhalds lið í íslenska boltanum: Smárinn í Varmahlíð
Uppáhalds lið í enska boltanum: Það er nú það
Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju: Lýsingur frá Voðmúlastöðum og Kveikur frá Miðsitju koma upp í hugann. Mjög ólíkir hestar en hafa skila íslenski hrossarækt fram á veg
Efnilegasti hestamaður/kona landsins: Systurnar á Ytra-Álandi, Elva Sóldís og Dagrún Sunna. Þær eru að temja fyrir mig um þessar mundir.
Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi: Maggi Magg á Íbishóli
Besti knapi frá upphafi: Sigurbjörn Bárðarson er alltaf drjúgur
Mesti gæðingur allra tíma að þínu mati: Pass
Besti hestur sem þú hefur prófað: Hef prófað mörg góð hross en skeiðsprettur á Skeifu Sigurborgar á Báreksstöðum gleymist ekki
Uppáhalds staður á Íslandi: Skagafjörður
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Jákvæðar hugsanir eru mikilvægar
Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum: Nei
Í hverju varstu lélegastur/lélegust í skóla: Efnafræði
Í hverju varstu bestur/best í skóla: Skástur í íslensku
Vandræðalegasta augnablik: Er góður í að gleyma slíku
Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju: Fjólu á Syðra-Skörðugili, hún bætir allan félagsskap. Einnig þá Ingimar á Ytra-Skörðugili og Þór Sigurðsson á Akureyri. Þau taka lagið og svo verða örugglega margar góðar sögustundir. Vonandi sækir Elvar okkur ekki allt of fljótt.
Sturluð staðreynd um sjálfa(n) þig: Kann að ryksuga
Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju: Gunnar á Löngumýri er ótrúlega farsæll í samskiptum við hross
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndir þú spyrja: Myndi gjarnan vilja spyrja frændur mína, sem úti urðu á Kili 1780, um ævi þeirra og örlög.
Mér var bæði ljúft og skylt að verða við áskorun Tryggva Ágústssonar. Ég hygg að hann sé best ríðandi Brúnastaðamanna og kempulegur á hesti.
Ég skora á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur að sýna á sér hina hliðina. Hún er bráðlipur hestakona, hestar fara fallega hjá henni.
Hin hliðin – Tryggvi Ágústsson
Hin hliðin – Kristinn Guðnason
Hin hliðin – Angantýr Þórðarson
Hin hliðin – Agnar Snorri Stefánsson
Hin hliðin – Heimir Gunnarsson
Hin hliðin – Hrafnhildur P Þorsteinsdóttir
Hin hliðin – Sylvía Sigurbjörnsdóttir
Hin hliðin – Telma L. Tómasson
Hin hliðin – Hulda Gústafsdóttir
Hin hliðin – Eygló Arna Guðnadóttir
Hin hliðin – Siguroddur Pétursson
Hin hliðin – Páll Bragi Hólmarsson
Hin hliðin – Sigríður Pjetursdóttir
Hin hliðin – Pjetur Nikulás Pjetursson
Hin hliðin – Fjóla Viktorsdóttir
Hin hliðin – Sigurður Sigurðsson
Hin hliðin – Halldór Victorsson
Hin hliðin – Bríet Guðmundsdóttir
Hin hliðin – Óli Pétur Gunnarsson