„Aldrei keppt við aðra. Einungis við sjálfan mig“

  • 22. júní 2022
  • Fréttir
Hin hliðin á Tryggva Ágústssyni

Hin hliðin heldur áfram hér á Eiðfaxa þar sem við fáum að kynnast nýjum hliðum á hestafólki um land allt. Að þessu sinni er komið að Tryggva Ágústssyni.

 

Fullt nafn: Tryggvi Ágústsson

Gælunafn: Í gamla daga var ég stundum kallaður Tiddi

Starf:  Fangavörður

Aldur: Löggilt gamalmenni fæddur 1 apríl 1955

Stjörnumerki: Hrútur

Blóðflokkur: O

Skónúmer: 46

Hjúskaparstaða: Kvæntur

Uppáhalds drykkur: Vatn, Jesús breytti vatn í vín þannig að það getur verið eftir því hvaða tilefnið er.

Uppáhalds matur: Lambahryggur með öllu tilheyrandi

Uppáhalds matsölustaður: Heima

Hvernig bíl áttu: VW Touareg

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Fréttir

Uppáhalds leikari: Brynjólfur Jóhannesson

Uppáhalds íslenski  tónlistarmaðurinn: Steini spil

Uppáhalds erlendi tónlistarmaðurinn: Pass

Uppáhalds lag: Það kemur margt upp i hugan t.d Undir bláhimmni, Undir dalana Sól og Hraustir menn. Erfitt að gera uppá milli.

Fyndnasti Íslendingurinn: Ragnar föðurbróðir minn. Hann var einstakur maður og hleypti galsa í mannskapinn.

Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Kann ekki átið á bragðaref.

Þín fyrirmynd: Foreldrar mínir

Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt:  Aldrei keppt við aðra. Einungis við sjálfan mig.

Sætasti sigurinn: Pass

Mestu vonbrigðin: Örugglega mörg.

Uppáhalds lið í íslenska boltanum: Héld með FH í handboltanum og Akranes í fótboltanum.

Uppáhalds lið í enska boltanum: Manchester United

Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju: Ófeigur frá Flugumýri. Hans arfleifð er einstök til Íslenskrar hrossaræktar. Ég vill gerast spámaður að um það verði ritaðar vísinda greinar í næstu framtíð.

Efnilegasti hestamaður/kona landsins:  Helga Þórbjörg Birgisdóttir 7 ára afastelpa. Hún kemur einu sinni í viku í hesthúsið og í vetur fór hún að ríða vilja hryssunni Rauðku minni berbakt í hesthúsgerðinu og stórbætti hana að kostum.

Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi:  Er það ekki Daníel Jónsson

Besti knapi frá upphafi: Pass

Mesti gæðingur allra tíma að þínu mati: þó að ég sé aðdáandi íslenska alhliða gæðingins þá er það klárhesturinn Loki frá Selfossi. Sigur hans og sýning hans á Landsmótinu á Hellu verður óbrotgjörn um aldir.

Besti hestur sem þú hefur prófað: Margir góðir.

Uppáhalds staður á Íslandi: Flóans fögru lönd

Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Þó ég sé ekki endilega trúaður þá þil ég faðir vorið í huganum og reyni að sofna sáttur við guð og menn.

Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum:  Já en ligg ekki yfir þeim.

Í hverju varstu lélegastur í skóla: Tungumálum.

Í hverju varstu bestur í skóla: Rétt miðlungs í flestu

Vandræðalegasta augnablik: Of mörg.

Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju: Ég tæki með félaga mína í meðvitunarlausa félaginu. Einar í Egilsstaðakoti hann verður með söng og gauragang. Magnús í Oddgeirshólum hann segir frá ræktunar afrekum gripa sinna frá hrútum til heybindivéla. Þormóður í Hjálmholti hann segir færra en kemur með gullkornin. Við tökum með júgrið af Kollu aðra næringu þurfum við ekki því að okkur er öllum vel í skinn komið.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Fór fyrst til tannlæknis 23 ára og hafði aldrei notað tannbursta og enginn skemmd í kjafti mínum en eftir það fór ég að nota tannbursta og þá fór að  halla undan fæti.

Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju: Pass

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndirðu spyrja: Spyr þá Flosa á Svínafelli um ferðalag hans úr Öræfanum og hans manna til brennunar  á Bergþórshvoli.

 

Ég skora á sjálfan Bjarna Maronsson í Varmahlíð frá Ásgeirsbrekku í Skagafirði. Hann fer tígurlega á hesti. Hann er mér minnisstæður eftir að ég fór með gagnamannafélagi Austurdals í göngur og ekki síður þegar hann fór fyrir liði Skagfirðinga og reið með mér og fleirum um Flóan fagra, til að segja okkur sinni hinni hlið.

 

Hin hliðin – Kristinn Guðnason

Hin hliðin – Angantýr Þórðarson

Hin hliðin – Agnar Snorri Stefánsson

Hin hliðin – Heimir Gunnarsson

Hin hliðin – Gísli Guðjónsson

Hin hliðin – Hrafnhildur P Þorsteinsdóttir

Hin hliðin – Sylvía Sigurbjörnsdóttir

Hin hliðin – Telma L. Tómasson

Hin hliðin – Hulda Gústafsdóttir

Hin hliðin – Hulda Jónsdóttir

Hin hliðin – Eygló Arna Guðnadóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar