„Þú getur allt sem þú vilt ef þú hefur trú á því“

  • 23. október 2023
  • Fréttir
Yngri hliðin - Steinunn Lilja Guðnadóttir

Yngri hliðin heldur áfram að kynnast framtíðar hestafólki landsins.

Elva Rún Jónsdóttir var síðust til að svara og skoraði hún á Steinunni Lilju Guðnadóttur sem tók að sjálfsögðu áskoruninni.

Hér fyrir neðan má finna svörin frá Steinunnar Lilju sem og nafn þess sem hún skorar á að sýna næst á sér hina hliðina.

 

Fullt nafn? Steinunn Lilja Guðnadóttir

Gælunafn? Systir mín kallar mig stundum Steinku

Bæjarfélag? Rangárþyng Eystra

Hestamannafélag? Geysir

Skóli? Fjölbrautaskóli Suðurlands

Aldur? 15 ára að verða 16 ára

Stjörnumerki? Sporðdreki

Samskiptamiðlar? Ég nota Snapchat, Instagram, TikTok og Facebook

Uppáhalds drykkur? Vatn er í miklu uppáhaldi hjá mér

Hvaða rétt ertu best að elda? Ég er frekar seig í eldhúsinu og elda oft en ég held ég sé best í að elda kjötbollur

Uppáhaldsmatur? Folaldasteik er í mikklu uppáhaldi

Uppáhalds matsölustaður? Shake & Pizza

Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Horfi lítið á sjónvarp þannig ég á engan uppáhalds

Uppáhalds tónlistarmaður? Ég á engan sérstakan

Uppáhalds lag? Þau eru of mörg til þess að velja eitt

Hvaða lag kemur þér alltaf í stuð? Það er ekkert sérstakt lag bara ef það er stuðlag þá verð ég í stuði.

Bað eða sturta? Sturta

Fyndnasti Íslendingurinn? Pétur Jóhann

Uppáhalds árstími? Sumarið

Hvað gerir þú til að slaka á? Vera ein og hafa það kósý eða vera með fjölskyldu eða vinum og hafa kósý og spjalla

Hvaða bíómynd getur þú horft á aftur og aftur? Stella í Orlofi

Uppáhalds ísbúð? Sveita Valdís á Hvolsvelli

Besta bók sem þú hefur lesið? Mér finnst ekki sérlega gaman að lesa þannig það stendur engin uppúr

Kringlan eða Smáralind? Kringlan

Hvað viltu í bragðarefinn þinn? Jarðaber, nutella og oreo

Þín fyrirmynd? Stærata fyrirmyndin mín er Eygló Arna systir mín

Stóðhestabókin eða Hrútaskráin? Stóðhestabókin

Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt? Svandís Aitken Sævarsdóttir

Sætasti sigurinn? Að komast í úrslit á Reykjarvíkurmeistaramóti 2023

Mestu vonbrigðin? Hvernig mér gekk á Landsmóti 2022

Uppáhalds lið í íslenska boltanum? KFR

Uppáhalds lið í enska boltanum? Á ekkert

Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju? Ég held að það yrði kónguinn hann Orri okkar af því að hann var einstakur.

Efnilegasti hestamaður/kona landsins? Það eru rosalega markir efnilegir knapar.

Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi? Helga Una Björnsdóttir

Uppáhalds hestamaðurinn þinn? Eygló Arna systir mín

Besti knapi frá upphafi? Árni Björn Pálsson

Besti hestur sem þú hefur prófað? Það stendur mikið upp úr að hafa fengið að setjast á Orra en svo standa Gerpla og Sóli frá Þúfu í Landeyjum mikið upp úr. Þau eru miklir yfirburðar meistarar.

Uppáhalds staður á Íslandi? Heima er best

Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? Stilli vekjaraklukkuna

Klukkan hvað ferðu á fætur? 7:30 á Mánudögum, Þriðjudögum og Miðvikudögum en 9:30 á Fimmtudögum og Föstudögum og misjafnt um helgar

Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já ég fylgist smá með fótbolta

Í hverju ertu lélegust í skóla? Ensku

Í hverju ertu best í skóla? Ég er frekar jöfn í flest öllu

Vandræðalegasta augnablik? Þegar ég hjólaði út í skurð og bróðir minn og frændi minn sáu það !

Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju? Elísabetu Líf Sigvaldadóttur, Eik Elvarsdóttur og Lilju Rún Sigurjónsdóttur.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Ég er búin með tvö stigspróf á þverflautu

Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju? Svandís Aitken Sævarsdóttir afþví hún er mjög fyndin týpa

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndir þú spyrja? Ég myndi spyrja Guð af hverju er himininn blár?

Lífsmottó? Þú getur allt sem þú vilt ef þú hefur trú á því.

 

Ég skora á Elísabetu Líf Sigvaldadóttur

 

Yngri hliðin – Elva Rún Jónsdóttir

Yngri hliðin –  Guðný Dís Jónsdóttir

Yngri hliðin – Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir

Yngri hliðin – Haukur Orri Bergmann Heiðarsson

Yngri hliðin – Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir

Yngri hliðin – Matthías Sigurðsson

Yngri hliðin – Ragnar Snær Viðarsson

Yngri hliðin – Dagur Sigurðarson

Yngri hliðin – Anton Óskar Ólafsson

Yngri hliðin – Sigurveig Sara Guðmundsdóttir

Yngri hliðin – Emma Thorlacius

Yngri hliðin – Freydís Þóra Bergsdóttir

Yngri hliðin – Ingibjörg Rós Jónsdóttir

Yngri hliðin – Björg Ingólfsdóttir

Yngri hliðin – Katrín Ösp Bergsdóttir

Yngri hliðin – Ólöf Bára Birgisdóttir

Yngri hliðin – Rakel Gígja Ragnarsdóttir

Yngri hliðin – Brynhildur Gígja Ingvarsdóttir

Yngri hliðin – Sara Dögg Björnsdóttir

Yngri hliðin – Hrund Ásbjörnsdóttir

Yngri hliðin – Katla Sif Snorradóttir

Yngri hliðin – Sara Dís Snorradóttir

Yngri hliðin – Kolbrún Sif Sindradóttir

Yngri hliðin – Kolbrún Katla Halldórsdóttir

Yngri hliðin – Herdís Björg Jóhannsdóttir

Yngri hliðin – Svandís Aitken Sævarsdóttir

Yngri hliðin – Helena Rán Gunnarsdóttir

Yngri hliðin – Sigrún Helga Halldórsdóttir

Yngri hliðin – Lilja Rún Sigurjónsdóttir

Yngri hliðin – Sigurbjörg Helgadóttir

Yngri hliðin – Glódís Líf Gunnarsdóttir

Yngri hliðin – Þórgunnur Þórarinsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar