„Upp upp og áfram og ekki gefa það“

  • 28. janúar 2024
  • Fréttir
Yngri hliðin - Benedikt Ólafsson

Yngri hliðin heldur áfram að kynnast framtíðar hestafólki landsins.

Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir var síðust til að svara og skoraði hún á Benedikt Ólafsson sem tók að sjálfsögðu áskoruninni.

Hér fyrir neðan má finna svörin frá Benedikt sem og nafn þess sem hann skorar á að sýna næst á sér hina hliðina.

 

Fullt nafn? Benedikt Ólafsson

Gælunafn? Oftast kallaður Bensi

Bæjarfélag? Mosfellsdalur 271

Hestamannafélag? Sennilega stoltasti Harðarfélagi landsins

Skóli? Ný útskrifaður húsasmiður

Aldur? 20

Stjörnumerki? Meyja og stend undir því

Samskiptamiðlar? Facebook, insta og snappið

Uppáhalds drykkur? Allt sem er með meira en 105mg af koffíni

Hvaða rétt ertu bestur að elda? Ég elda nú ekki mikið en tel mig efnilegann og þá sérstaklega á grillinu

Uppáhaldsmatur? Hrossalund með heimagerðri bernais og frönskum. Það er ekkert sem toppar það

Uppáhalds matsölustaður? Grillmarkaðurinn

Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Peaky blinders. Þeir eru ástæðan fyrir því að ég á six pensara

Uppáhalds tónlistarmaður? Holy B eða Bubbi. Ekki séns að gera upp á milli

Uppáhalds lag? Það fer svaðalega eftir skapi

Hvaða lag kemur þér alltaf í stuð? Meira frelsi með Mercedes club er ofarlega á þeim lista núna

Bað eða sturta? Sturta, fæ hroll við tilhugsunina að hugsa að fara í bað.

Fyndnasti Íslendingurinn? Þegar að Leó nokkur Hauksson dettur í gírinn þá eru fáir sem toppa hann

Uppáhalds árstími? Sumarið. Það er ekki mikið af því en þegar það er þá er ég í gír

Hvað gerir þú til að slaka á? Á erfitt með það, slaka sennilega mest á uppi á fjalli með byssu á bakinu eða með veiðistöng í hendinni.

Hvaða bíómynd getur þú horft á aftur og aftur? Þori varla að viðurkenna það en er búinn að horfa á Grown Ups skuggalega oft.

Uppáhalds ísbúð? Huppa

Besta bók sem þú hefur lesið? Áin með Bubba Morthens

Kringlan eða Smáralind? Hvorugt helst

Hvað viltu í bragðarefinn þinn? Er að vinna með 2x Oreo, jarðaber og Nutella núna

Þín fyrirmynd? Foreldrar mínir

Stóðhestabókin eða Hrútaskráin? Stóðhestabókin

Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt? Hafþór Hreiðar hann veit upp á sig sökina

Sætasti sigurinn? Heimsmeistaratitillinn í samanlögðum fimmgangsgreinum sem var innsiglaður af frábærri sýningu í slaktaumatölti. Eða í seinna skiptið sem ég vann landsmótið á heimaræktuðum gæðing.

Mestu vonbrigðin? Að það hafi ekki verið Landsmót 2020

Uppáhalds lið í íslenska boltanum? Afturelding í handboltanum

Uppáhalds lið í enska boltanum? Hef ekki hort á fótbolta síðan ég man ekki hvenær

Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju? Álfadís, þvílik meri og kynbótahross

Efnilegasti hestamaður/kona landsins? Stormur Ingi

Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi? Hildur Ösp

Uppáhalds hestamaðurinn þinn? Pabbi er seigur þegar að hann er kominn í gírinn

Besti knapi frá upphafi? Árni Björn eða Diddi Bárðars þeir eru magnaðir báðir tveir

Besti hestur sem þú hefur prófað? Biskup frá Ólafshaga. Hlutlægt mat en mikið rosalega finnst mér gaman að sitja hann

Uppáhalds staður á Íslandi? Hofsdalur í Álftafirði

Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? Slekk á símanum og rúlla mér yfir á hina hliðina

Klukkan hvað ferðu á fætur? Er að yfirleitt að vakna uppúr 07:00

Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum? Þykist vera góður í handbolta þegar að landsliðið er að spila

Í hverju ertu lélegastur í skóla? Að þegja í tíma

Í hverju ertu bestur í skóla? Var seigur í stærfræðinni

Vandræðalegasta augnablik? Hugsa að það hafi verið þegar ég var tekinn í viðtal eftir Landsmót 2018 á ensku. Þetta var fyrir heimildarmynd um íslenska hestinn sem var síðan sýnd í Bíó Paradís. Fullur salur og viðtalið fer í gang og það springa allir úr hlátri. Það leiðinlega við það var að ég var ekki að segja neitt fyndið.

Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju? Tæki Kristján Arason, Leó Hauksson og Hildi Ösp. Þetta myndi síðan breytast í árlega hefð hjá okkur.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Er með samvaxnar tær og æfði ballet í 3 ár. Var talinn mikið efni.

Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju? Leó, hann er ekki jafn vitlaus og margir halda. Það þarf bara að gefa honum séns

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndir þú spyrja? Myndi spyrja lávaxið fólk hvernig veðrið er þarna niðri?

Lífsmottó? Upp upp og áfram og ekki gefa það

 

Ég skora á Hildi Ösp Vignisdóttur

 

 

Yngri hliðin – Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir

Yngri hliðin – Sigurður Baldur Ríkharðsson

Yngri hliðin – Hulda María Sveinbjörnsdóttir

Yngri hliðin – Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson

Yngri hliðin – Viktor Óli Helgason

Yngri hliðin – Friðrik Snær Friðriksson

Yngri hliðin – Elín Ósk Óskarsdóttir

Yngri hliðin – Ída Mekkín Hlynsdóttir

Yngri hliðin – Elísabet Líf Sigvaldadóttir

Yngri hliðin – Steinunn Lilja Guðnadóttir

Yngri hliðin – Elva Rún Jónsdóttir

Yngri hliðin –  Guðný Dís Jónsdóttir

Yngri hliðin – Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir

Yngri hliðin – Haukur Orri Bergmann Heiðarsson

Yngri hliðin – Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir

Yngri hliðin – Matthías Sigurðsson

Yngri hliðin – Ragnar Snær Viðarsson

Yngri hliðin – Dagur Sigurðarson

Yngri hliðin – Anton Óskar Ólafsson

Yngri hliðin – Sigurveig Sara Guðmundsdóttir

Yngri hliðin – Emma Thorlacius

Yngri hliðin – Freydís Þóra Bergsdóttir

Yngri hliðin – Ingibjörg Rós Jónsdóttir

Yngri hliðin – Björg Ingólfsdóttir

Yngri hliðin – Katrín Ösp Bergsdóttir

Yngri hliðin – Ólöf Bára Birgisdóttir

Yngri hliðin – Rakel Gígja Ragnarsdóttir

Yngri hliðin – Brynhildur Gígja Ingvarsdóttir

Yngri hliðin – Sara Dögg Björnsdóttir

Yngri hliðin – Hrund Ásbjörnsdóttir

Yngri hliðin – Katla Sif Snorradóttir

Yngri hliðin – Sara Dís Snorradóttir

Yngri hliðin – Kolbrún Sif Sindradóttir

Yngri hliðin – Kolbrún Katla Halldórsdóttir

Yngri hliðin – Herdís Björg Jóhannsdóttir

Yngri hliðin – Svandís Aitken Sævarsdóttir

Yngri hliðin – Helena Rán Gunnarsdóttir

Yngri hliðin – Sigrún Helga Halldórsdóttir

Yngri hliðin – Lilja Rún Sigurjónsdóttir

Yngri hliðin – Sigurbjörg Helgadóttir

Yngri hliðin – Glódís Líf Gunnarsdóttir

Yngri hliðin – Þórgunnur Þórarinsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar