„Hvítar keppnisbuxur valda ógæfu“

  • 15. nóvember 2023
  • Fréttir
Yngri hliðin - Elín Ósk Óskarsdóttir

Yngri hliðin heldur áfram að kynnast framtíðar hestafólki landsins.

Ída Mekkín Hlynsdóttir var síðust til að svara og skoraði hún á Elínu Ósk Óskarsdóttir sem tók að sjálfsögðu áskoruninni.

Hér fyrir neðan má finna svörin frá Elínu Ósk sem og nafn þess sem hún skorar á að sýna næst á sér hina hliðina.

 

Fullt nafn? Elín Ósk Óskarsdóttir

Gælunafn? Ekkert sérstakt

Bæjarfélag? Hornafjörður

Hestamannafélag? Hornfirðingur

Skóli? FAS

Aldur? 16

Stjörnumerki? SteinGEIT

Samskiptamiðlar? Snap, Insta, Facebook og Tiktok

Uppáhalds drykkur? Pepsi Max

Hvaða rétt ertu best að elda? Weetos með mjólk

Uppáhaldsmatur? Sushi

Uppáhalds matsölustaður? Ottó eða nammibarinn í Hagkaup

Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Friends

Uppáhalds tónlistarmaður? Frank Ocean og Yebba

Uppáhalds lag? Þú komst með jólin til mín eða After the love has gone

Hvaða lag kemur þér alltaf í stuð? Drink Beer

Bað eða sturta? Sturta

Fyndnasti Íslendingurinn? Snæbjörg Guðmundsdóttir(Snæsa) eða Hildur Ýr Ómarsdóttir(mamma Ídu)

Uppáhalds árstími? Vetur

Hvað gerir þú til að slaka á? Horfa á Friends

Hvaða bíómynd getur þú horft á aftur og aftur? Zootopia

Uppáhalds ísbúð? Gelato ísbúðin á Hlemm

Besta bók sem þú hefur lesið? Fíasól eða Skúli Skelfir

Kringlan eða Smáralind? Kringlan

Hvað viltu í bragðarefinn þinn? Jarðaber, daim og lúxusídýfu

Þín fyrirmynd? Afi Pálmi. Fyrirmynda knapinn er Olil Amble og Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir

Stóðhestabókin eða Hrútaskráin? Stóðhestabókin

Mest óþolandi keppandi sem þú hefur mætt? Örugglega hún frænka, Ída Mekkín

Sætasti sigurinn? Það hlýtur að vera þegar að ég sigraði B úrslit í fjórgang og komst þar af í A úrslitin á Suðurlandsmótinu þetta árið

Mestu vonbrigðin? Landsmót 2022. Hvítar keppnisbuxur valda ógæfu, hef komist að því

Uppáhalds lið í íslenska boltanum? Sindri

Uppáhalds lið í enska boltanum? Man. United

Ef þú fengir að eiga einn hest, lífs eða liðinn, hvern myndir þú velja og af hverju? Skýr frá Skálakoti því að hann er æði og fengi líka mikið fyrir folaldatoll

Efnilegasti hestamaður/kona landsins? Olil Amble

Fallegasti hestamaður/kona á Íslandi? Ída Mekkín er frekar sæt

Uppáhalds hestamaðurinn þinn? Siggi Sig

Besti knapi frá upphafi? Þetta er frekar stór spurning sem ég get ekki svarað

Besti hestur sem þú hefur prófað? Marín frá Lækjarbrekku

Uppáhalds staður á Íslandi? Lækjarbrekka 2 eða heima hjá Ídu

Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? Tek snúðinn úr hárinu mínu

Klukkan hvað ferðu á fætur? Þetta er flókið, stundum 7, stundum 8 og stundum 9 eða 10

Fyrir utan hestamennsku, fylgist þú með öðrum íþróttum? Enska boltanum og svo elska ég Dance Moms, þannig dans

Í hverju ertu lélegust í skóla? Náttúrufræðin er alveg ferleg

Í hverju ertu best í skóla? Íslensku

Vandræðalegasta augnablik? Alltaf þegar maður segir eitthvað vitlaust í stærðfræðitímum

Hvaða þrjá hestamenn tækir þú með þér á eyðieyju? Ídu, Mathilde og Pöndu

Sturluð staðreynd um sjálfan þig? Ég held að ég get ropað hærra en allir

Hvaða hestamaður hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum/henni og af hverju? Viktor Óli, hann situr beinni en allt sem er beint

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er, hver yrði spurningin og hvern myndir þú spyrja? Ég myndi spurja Pál Arason hvort hann hefði viljað chilla með hambó í annarri hendi og pitsu í hinni eða pitsu í báðum

Lífsmottó? Ef þú kemur ekki ríðandi að austan, þá kemurðu skríðandi að vestan.

 

Ég skora á Friðrik Snæ Friðriksson

 

 

Yngri hliðin – Ída Mekkín Hlynsdóttir

Yngri hliðin – Elísabet Líf Sigvaldadóttir

Yngri hliðin – Steinunn Lilja Guðnadóttir

Yngri hliðin – Elva Rún Jónsdóttir

Yngri hliðin –  Guðný Dís Jónsdóttir

Yngri hliðin – Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir

Yngri hliðin – Haukur Orri Bergmann Heiðarsson

Yngri hliðin – Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir

Yngri hliðin – Matthías Sigurðsson

Yngri hliðin – Ragnar Snær Viðarsson

Yngri hliðin – Dagur Sigurðarson

Yngri hliðin – Anton Óskar Ólafsson

Yngri hliðin – Sigurveig Sara Guðmundsdóttir

Yngri hliðin – Emma Thorlacius

Yngri hliðin – Freydís Þóra Bergsdóttir

Yngri hliðin – Ingibjörg Rós Jónsdóttir

Yngri hliðin – Björg Ingólfsdóttir

Yngri hliðin – Katrín Ösp Bergsdóttir

Yngri hliðin – Ólöf Bára Birgisdóttir

Yngri hliðin – Rakel Gígja Ragnarsdóttir

Yngri hliðin – Brynhildur Gígja Ingvarsdóttir

Yngri hliðin – Sara Dögg Björnsdóttir

Yngri hliðin – Hrund Ásbjörnsdóttir

Yngri hliðin – Katla Sif Snorradóttir

Yngri hliðin – Sara Dís Snorradóttir

Yngri hliðin – Kolbrún Sif Sindradóttir

Yngri hliðin – Kolbrún Katla Halldórsdóttir

Yngri hliðin – Herdís Björg Jóhannsdóttir

Yngri hliðin – Svandís Aitken Sævarsdóttir

Yngri hliðin – Helena Rán Gunnarsdóttir

Yngri hliðin – Sigrún Helga Halldórsdóttir

Yngri hliðin – Lilja Rún Sigurjónsdóttir

Yngri hliðin – Sigurbjörg Helgadóttir

Yngri hliðin – Glódís Líf Gunnarsdóttir

Yngri hliðin – Þórgunnur Þórarinsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar